Viðskipti innlent

Stefán Bogi nýr formaður Samtaka orkusveitarfélaga

Atli Ísleifsson skrifar
Stefán Bogi Sveinsson.
Stefán Bogi Sveinsson.
Stefán Bogi Sveinsson, bæjarfulltrúi á Fljótsdalshéraði, hefur verið kjörinn formaður Samtaka orkusveitarfélaga.

Hann var kjörinn á aðalfundi samtakanna sem fram fór í liðinni viku og tekur við formennskunni af Gunnari Þorgeirssyni, oddvita Grímsnes- og Grafningshrepps.

Í tilkynningu frá samtökunum segir að á fundinum hafi einnig verið samþykkt inntökubeiðni Blönduósbæjar og eru aðildarsveitarfélögin þar með orðin 21 talsins.

Á fundinum var ný stjórn samtakanna kjörin til næstu tveggja ára. Hana skipa eftirtaldir:

Stefán Bogi Sveinsson, Fljótsdalshéraði, formaður

Árni Eiríksson, Flóahreppi

Dagbjört Jónsdóttir, Þingeyjarsveit

Gunnar Þorgeirsson, Grímsness- og Grafningshreppi

Kristín María Birgisdóttir, Grindavíkurbæ

Sigrún Hauksdóttir, Húnavatnshreppi

Unnur Lára Bryde, Hafnarfjarðarbæ

„Samtök orkusveitarfélaga voru stofnuð árið 2011 og er markmið þeirra einkum að standa vörð um hagsmuni aðildarsveitarfélaga í öllum málum sem tengjast byggingu orkuvera og virkjana, orkunýtingu, fjárhagslegum hagsmunum í þessu sambandi og umhverfismálum.

Megináhersla hefur verið lögð á að þrýsta á um nauðsynlegar breytingar í skattaumhverfi orkuframleiðslu, með áherslu á fasteignagjöld, en einnig hafa samtökin látið sig varða lagaumhverfi vindorkuframleiðslu ásamt fleiri þáttum,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×