Starfsmenn Nýherja lækka í launum 31. október 2008 12:52 Nýherji bregst við breyttu efnahagsumhverfi.
Nýherji hefur ákveðið að bregðast við óvissu og breyttu efnahagsumhverfi hérlendis með lækkun launa og rekstarkostnaðar. Laun allra starfsmanna félagsins og dótturfélaga hér á landi lækka um 10%. Laun starfsmanna með grunnlaun, sem eru undir 300 þúsund krónur á mánuði, haldast óbreytt. Markmiðið með þessum aðgerðum er að vernda störf starfsmanna eins og kostur er á þeim óvissutímum sem eru framundan í íslensku efnahagslífi. Laun starfsmanna lækka um 10% frá 1. febrúar 2009. Launalið í samningum starfsmanna verður sagt upp skriflega með þriggja mánaða fyrirvara. Laun forstjóra og framkvæmdastjóra lækka um 10% strax frá 1. nóvember. Þá kann að verða rætt við einstaka starfsmenn um hvort þeir taki að sér hlutastarf til að mæta hugsanlegum samdrætti í þeirra verkefnum. Einnig hefur reynst nauðsynlegt að ganga nú frá starfslokum 15 starfsmanna af 550 hérlendis vegna fyrirsjáanlegs samdráttar. Beitt verður ýtrasta aðhaldi í rekstri og dregið úr þróunarkostnaði og öðrum útgjöldum eins og kostur er. „Fjárhagsstaða Nýherja er traust og félagið hóflega skuldsett, en fyrirsjáanlegt er að sú erfiða staða sem er í íslensku efnahagslífi geti haft áhrif á tekjur og rekstur félagsins. Launakostnaður er nærri 80% af rekstrarkostnaði Nýherja og því nauðsynlegt að lækka þann kostnað. Við viljum grípa til aðgerða strax í ljósi aðstæðna," segir Þórður Sverrisson forstjóri Nýherja. „Megin áhersla okkar á næstu vikum og mánuðum felst þar af leiðandi í því að skila viðunandi afkomu í öllum félögum, renna enn styrkari stoðum undir starfsemi þeirra og um leið að verja störf starfsfólksins. Með þessum aðgerðum og innleiðingu á nýju viðskiptamódeli getum við búið í haginn fyrir nýja sókn á næstu misserum." Félög Nýherja samstæðunnar eru 20 bæði hér heima og erlendis. Dótturfélögin hér á landi eru TM Software ehf., Applicon ehf., ParX ehf., Sense ehf., Linkur ehf., SimDex ehf., Klak ehf., Vigor ehf., Skyggnir ehf., Origo ehf. og eMR ehf. Um 720 starfa í allri samstæðunni, þar af eru um 550 hér á landi og 170 í dótturfélögum erlendis. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Nýherja.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira