Starfsmenn hræðast afstöðu Rio Tinto Kristjana Guðbrandsdóttir skrifar 3. ágúst 2015 21:30
Starfsmenn í álverinu í Straumsvík hræðast afstöðu stjórnenda Rio Tinto Alcan sem vilja aukna heimild til verktöku. Deiluaðilar hittast á fundi hjá Ríkissáttasemjara á morgun. Nokkrar undanþágur hafa verið veittar á yfirvinnubanni um helgina. Framleiðsla í álverinu í Straumsvík hefur gengið vel þrátt fyrir yfirvinnubann starfsmanna sem hófst á laugardag. Nokkrar undanþágur hafa verið veittar til að tryggja öryggi starfsmanna og að ekki verði tjón á búnaði eða framleiðslu. Á morgun hittast deiluaðilar hjá Ríkissáttasemjara. Þar ætla starfsmenn að leggja fram tillögu sem þeir vonast til þess að liðki fyrir viðræðum. Gylfi Ingvarsson ráðgjafi starfsmanna vill lítið gefa uppi en segir enn sem komið er himinn og haf á milli hugmynda stjórnenda og starfsmanna um bætt kjör. „Það kemur í ljós á fundinum á morgun hvort að útspil annað hvort frá þeim eða okkur dugar til þess að fara í viðræður til að ljúka þessum samningi. En það er himinn og haf á milli,“ segir Gylfi. Ef ekki semst fyrir 1.september hefst verkfall starfsmanna. Stjórnendur fyrirtækisins hafa gert það að forgangskröfu að fá aukna heimild til verktöku. Þeir segja aðeins um fjörutíu störf að ræða en starfsmenn hafa haldið því fram að þau séu fleiri, á milli sjötíu og áttatíu störf. Gylfi svarar aðspurður að starfsmenn ekki óttast það að takast á um kröfuna í kjarasamningum en þeir óttist hins vegar afstöðu móðurfyrirtækisins. „Þeir hræðast ekki af völdum kjarasamnings. Við erum að semja um kaup og kjör, ekki um að loka fyrirtækinu. Aftur á móti hræðast menn afstöðu Rio Tinto. En þá verða Rio Tinto að taka ákvörðun á þeirra forsendum, ekki á forsendum kjarasamnings.“
Mest lesið Steinunn Ólína skýtur föstum skotum á Katrínu Innlent Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Erlent Segir borgarstjóra óttalegan vettling Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Innlent „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Innlent Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna Innlent Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Innlent Segir lág laun leikskólakennara mýtu Innlent Steinunn Ólína segir landráðamál í uppsiglingu Innlent Fleiri fréttir Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Komu litlum fiskibáti til bjargar Þyrlan í loftið vegna slasaðs vélsleðamanns Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Alvarlegt umferðarslys í Eyjafirði Segir lág laun leikskólakennara mýtu Alltof mörg börn misstu af bólusetningu við mislingum Leyfisveitingin ekki brot á EES-samningnum Með 19 þúsund MDMA-töflur í ferðatöskunni Hafi líka reynt að bana eldri syni sínum Steinunn Ólína segir landráðamál í uppsiglingu Stofnaði lífi átta manna í hættu „í ábataskyni og á ófyrirleitinn hátt“ Fleiri löggur á leiðinni Seðlabankinn geti ekki annað en lækkað vexti Krefja Seðlabankann um vaxtalækkun Eldur í gámi við Sundabakka Alls konar fabúleringar um vinskapinn við Bjarna Ben Lætur staðar numið í pólitíkinni Mikill reykur þegar kviknaði í einangrunarplasti Leikskólakennarar ósáttir við vettlingagjörning Sjá meira