Innlent

Starfsmenn Fiskistofu gagnrýna breytingar á lögum um Stjórnarráðið

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegsráðherra.
Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegsráðherra. Vísir/Stefán/Valli
Starfsmenn Fiskistofu hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem breytingum á lögum um Stjórnarráð Íslands er mótmælt harðlega. Beinist gagnrýnin aðallega að því ákvæði laganna að ráðherra hafi óhefta heimild til flutnings á aðsetri ríkisstofnana.

Það vakti mikla athygli síðastliðið haust þegar Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegsráðherra, tilkynnti starfsmönnum Fiskistofu að flytja ætti stofnunina til Akureyrar nú í sumar. Mættu áform ráðherrans mikilli andstöðu starfsmönnum Fiskistofu auk þess sem ýmsir töldu ráðherra skorta lagaheimild til að flytja stofnunina.

Að lokum fór það svo að málið var sett á ís og sagði Sigurður Ingi að flutningur Fiskistofu yrði ekki keyrður í gegn á þessu ári. Í yfirlýsingu sinni segja þó starfsmenn stofnunarinnar þetta:

„Sá varnagli var settur í lögin á óhefta heimild ráðherra til flutnings stofnana, að hyggist viðkomandi ráðherra nýta sér valdheimildir sínar, þá verður hann að gefa Alþingi skýrslu áður en ákvörðun þar um verður tekin.

Sá böggull fylgir þó skammrifi í umræddri lagasmíð að „skýrsluákvæðið“ tekur ekki gildi fyrr en 1. september 2015. Það þýðir að ráðherra kann að álykta að hann geti farið óhindrað fram í flutningi Fiskistofu til Akureyrar, innan þess tíma, taki hann ákvörðun þar um.

Ráðherra hefur með bréfi til starfsmanna Fiskistofu  13. maí sl. sagt:

„Aðrir núverandi starfsmenn stofnunarinnar [aðrir en fiskistofustjóri] sem starfa á höfuðborgarsvæðinu hafa val um starfsstöð milli Akureyrar og höfuðborgarsvæðisins.“

Vandséð er hvernig starfsemi stofnunarinnar verður háttað taki ráðherra ákvörðun um flutning hennar til Akureyrar, meðan flest allir núverandi starfsmenn starfa áfram á höfuðborgarsvæðinu.

Starfsmenn Fiskistofu skora á ráðherra að hverfa alfarið frá áformum sínum um fyrirhugaðan flutning Fiskistofu. Það er mat starfsmanna Fiskistofu að ráðherra verði, hyggist hann nú taka ákvörðun um flutning Fiskistofu, að ígrunda vandlega ábendingar umboðsmanns Alþingis í áliti hans nr. 8181/2014 frá 22. apríl sl.“

Þá segir jafnframt í yfirlýsingunni að starfsmenn Fiskistofu hyggist mynda starfshóp „til að standa vörð um loforð ráðherra og vandaða stjórnsýsluhætti komi til flutnings höfuðstöðva Fiskistofu. Það er gert til að tryggja að staðið verði við yfirlýsingar ráðherra, varðandi réttmætar væntingar núverandi starfsmanna Fiskistofu, sem fram koma í bréfi hans 13. maí sl. Starfsmenn Fiskistofu ætla jafnframt með öllum ráðum að koma í veg fyrir að farið verði gegn fyrirheitum ráðherra, með þrýstingi eða sniðgöngu, um að núverandi starfsmenn stofnunarinnar hafi val um starfsstöð.“


Tengdar fréttir

Flutningur Fiskistofu ekki á áætlun

Nær öruggt er að höfuðstöðvar Fiskistofu verði fluttar til Akureyrar fyrir 1.júlí eins og stefnt var að. Margir Sjálfstæðismenn hafa heitið því að berjast gegn því að sjávarútvegsráðherra fái heimild fyrir að flytja stofnunina.

„Einhver vanhugsaðasta aðgerð sem ég man eftir“

Þórarinn Eyfjörð, framkvæmdastjóri SFR, segir að það muni kosta meira en þrjár milljónir að þjálfa upp einn nýjan starfsmann á Fiskistofu ef núverandi starfsfólk flyst ekki með.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×