„Við fórum þarna út og gáfum honum kaffi," segir Elín Jóhannesdóttir hjá fræðslusviði biskupsstofu á Laugaveginum, en hún bauð mótmælanda sem þar stendur, upp á kaffibolla. Það gerði hún ásamt konu sem rekur verslun í sama húsi.
„Ég bauð honum svo inn en það vildi hann ekki. Hann vildi kom sínum skilaboðum á framfæri hljóðlega og með þessum hætti," segir Elín sem bætir við að veðrið sé heldur hráslagaralegt og því hafi hún boðið honum inn í hlýjuna.
Maðurinn hefur staðið fyrir utan biskupsstofu í dag með skilti sem á stendur „Nýjan Byskup".
Hann hefur komið sínum mótmælum áleiðis á hljóðlegan hátt og vill bersýnilega að biskup segi af sér.
„Þetta er greinilega sómamaður. Ég spjallaði aðeins við hann," segir Elín sem sárnar ekki gagnrýnin og tekur fram að fólk eigi rétt á að koma sínum sjónarmiðum áleiðis.
„En við viljum engan hlaðkulda á biskupsstofu," segir hún um kaffigjöfina sem hefur væntanlega yljað mótmælandanum örlítið í köldu veðrinu.
Þegar fréttamaður falaðist eftir því að ræða við hann neitaði hann honum um viðtal með þeim orðum að það væri litlu við skiltið að bæta.
Þess má geta að mótmælandinn notar fornan rithátt á orðinu biskup. Rithátturinn byskup er því ekki rangur þó orðið sé almennt ekki ritað þannig í dag.