Innlent

Starfsmaður velferðarsviðs tvisvar kærður fyrir kynferðisbrot gegn börnum

Þórdís Valsdóttir skrifar
Maðurinn starfar á velferðarsviði Reykjavíkurborgar en hann er nú í ótímabundnu leyfi frá störfum.
Maðurinn starfar á velferðarsviði Reykjavíkurborgar en hann er nú í ótímabundnu leyfi frá störfum. vísir/GVA
Starfsmaður á velferðarsviði Reykjavíkurborgar hefur verið kærður til lögreglu fyrir að brjóta kynferðislega á fyrrum stjúpdóttur sinni sem er á barnsaldri. Maðurinn, sem er á sextugsaldri, hefur áður verið kærður fyrir kynferðisbrot gegn ungum dreng en var ekki ákærður fyrir meint brot. RÚV greinir frá.

Samkvæmt frétt RÚV er maðurinn í ótímabundnu leyfi frá störfum en starf hans heyrir undir velferðarsvið borgarinnar. Maðurinn á ekki í beinum samskiptum við börn í starfi sínu. Kæran barst lögreglu í desember á síðasta ári.

Áður kærður fyrir kynferðisbrot

Fyrir þremur árum starfaði maðurinn hjá öðru sveitarfélagi en þá var maðurinn kærður til lögreglu fyrir að brjóta kynferðislega á ungum dreng. Í frétt RÚV um málið kemur fram að pilturinn hafi verið skjólstæðingur mannsins og áttu brotin að hafa átt sér stað nokkrum árum áður en kæra barst. Rannsókn lögreglu á málinu leiddi til þess að ekki var gefin út ákæra vegna þess.

Maðurinn hætti störfum hjá því sveitarfélagi sem hann vann hjá áður á meðan rannsókn lögreglu stóð yfir. Eftir það hóf hann störf hjá stofnun á vegum ríkisins og var svo ráðinn til starfa á velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Hann mun hafa greint yfirmanni sínum frá kæru piltsins.

Halldóra Gunnarsdóttir, framkvæmdastýra Barnaverndar Reykjavíkur, sagði í samtali við Vísi í kvöld að hún gæti ekki tjáð sig um málið. Öll slík mál barna sem eigi lögheimili í Reykjavík rati á borð Barnaverndar.

„Málið fer þá frá lögreglu til okkar en oftast eiga slík mál fyrstu lendingu hjá okkur og við komum þeim í farveg hjá lögreglu og barni í farveg í Barnahúsi,“ segir Halldóra.

Hvorki náðist í Regínu Ásvaldsdóttur sviðsstjóra velferðarsviðs við vinnslu fréttarinnar, né Árna Þór Sigmundsson yfirlögregluþjón kynferðisbrotadeildar lögreglunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×