Lífið

Starfsmaður lést á tökustað

Martin Scorsese
Byggingastarfsmaðurinn lést áður en tökur á nýjustu mynd leikstjórans hófust.
Martin Scorsese Byggingastarfsmaðurinn lést áður en tökur á nýjustu mynd leikstjórans hófust. Nordicphotos/Getty
Byggingastarfsmaður sem vann á tökustað nýjustu kvikmyndar Martins Scorsese, Silence, lést eftir að þak hrundi þar sem undirbúningur fyrir tökurnar fór fram í Taiwan.

Tveir aðrir starfsmenn voru að störfum með honum og slösuðust þeir. Mennirnir voru að vinna við að gera bygginguna öruggari þegar slysið varð.

Silence er söguleg dramamynd þar sem Liam Neeson og Andrew Garfield leika kristniboða. Tökur á myndinni áttu að hefjast í dag en ekki er vitað hvort þeim verði frestað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×