Starfshópur segir ekkert mæla með hreindýraeldi Svavar Hávarðsson skrifar 29. júní 2015 07:00 Óvissa um áhrif á náttúru landsins eru helstu rök nefndarmanna gegn eldi. fréttablaðið/valli
Starfshópur umhverfisráðherra finnur því flest til foráttu að hefja eldi hreindýra hér á landi. Helstu rök eru sjúkdómahætta og önnur áhrif á villtan stofn hreindýra á Austurlandi. Rök nefndarinnar eru haldlítil, segja þeir sem sóttu um leyfi til hreindýraeldis í fyrra og var kveikjan að því að málið komst á dagskrá og að nefndarstarfinu. Birni Magnússyni, fyrrverandi bónda og áhugamanni um hreindýraeldi og annar þeirra sem sóttu um leyfi til hreindýraeldis í fyrra, kemur niðurstaða nefndarinnar ekki á óvart, enda hafi andstaða við málið verið greinileg frá upphafi. Hann og Stefán Hrafn Magnússon, hreindýrabóndi á Grænlandi, hafi aldrei fengið að gera grein fyrir hugmyndum sínum, og það hafi verið afþakkað af nefndarformanni að þeir kæmu fyrir nefndina til að skýra sín sjónarmið. Eins hafi Sigurður Ingi Jóhannsson, þáverandi umhverfisráðherra, aldrei viljað ræða hugmyndirnar. Allt bendi til þess að niðurstaðan hafi verið ákveðin fyrirfram og þeim Stefáni haldið skipulega utan við málið.Björn Magnússon„Við höfum íhugað að kæra málsmeðferðina, enda sennilega brot á stjórnsýslulögum. En ég veit ekki hvort við nennum að standa í því,“ segir Björn. Björn segist ekki geta samþykkt að eldi hreindýra á Íslandi hefði neikvæð áhrif á stöðu villta hreindýrastofnsins, og vísar til reynslu fjölmargra nágrannaþjóða þar sem eldi hefur viðgengist um langan aldur án vandræða. Á það við um Kanada, Grænland, Svíþjóð, Finnland og Noreg. „Það er ekkert sem rökstyður það að Ísland hafi þá sérstöðu miðað við þessi lönd að eldi komi ekki til greina hér,“ segir Björn. Björn og Stefán Hrafn höfðu hugsað sér að ala hjörð sem gæfi bæði tækifæri í ferðaþjónustu, og til kjötnytja. Um tvö þúsund dýr yrðu alin á stóru landsvæði sem yrði girt af, og nefnir Björn Digranes og Langanes þar eystra til að gefa hugmynd um svæði sem þeir höfðu í huga – þó engir samningar hafi verið gerðir við landeigendur um slíka landnýtingu. Þó hafi áhugi landeigenda verið töluverður.
Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Erlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Erlent Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Innlent „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Innlent Fleiri fréttir Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Sjá meira