Viðskipti innlent

Starfsfólkið fékk borgað áður en United Silicon fór í þrot

Haraldur Guðmundsson skrifar
Tapið af rekstri United Silicon er umtalsvert.
Tapið af rekstri United Silicon er umtalsvert. vísir/anton brink
Starfsfólk United Silicon fékk í gær greidd laun sem það átti inni fyrir vinnu í janúar áður en beiðni um heimild um gjaldþrotaskipti kísilversins var send héraðsdómara í gær. Ákvörðun um hvað verður um störfin 56 er í höndum nýskipaðs skiptastjóra félagsins, hæstaréttarlögmannsins Geirs Gestssonar.

Stjórn United Silicon sendi í gær beiðni til Héraðsdóms Reykjaness um gjaldþrotaskipti. Samkvæmt tilkynningu fyrirtækisins var þá útséð um að nauðasamningar næðust og engar forsendur fyrir frekari framlengingu á greiðslustöðvun sem fyrirtækið fékk í ágúst síðastliðnum. Þar segir einnig að ákvörðunin hafi verið tekin eftir að Umhverfisstofnun gerði kröfu um að rekstur verksmiðjunnar hæfist ekki á ný fyrr en eftir viðamiklar framkvæmdir sem gætu tekið vel á annað ár.

„Verkefni stjórnar á greiðslustöðvunartímabilinu var að reyna að ná nauðasamningum og fá nýja fjárfesta að félaginu. Forsenda þess var að fá betri upplýsingar um stöðu félagsins. Þær úttektir sem unnar voru leiddu meðal annars í ljós mikla óreiðu og upp kom rökstuddur grunur um fjárdrátt stofnanda félagsins. Hann hefur verið kærður til embættis héraðssaksóknara,“ sagði í tilkynningunni og þar vísað til Magnúsar Garðarssonar, fyrrverandi forstjóra United Silicon.

Sérfræðingar sem framkvæmdu ítarlegar úttektir á búnaði verksmiðjunnar í Helguvík telja að um 25 milljónir evra, tæpa 3,2 milljarða króna, þurfi til að verksmiðjan teljist fullkláruð. Grunnhönnun ljósbogaofnsins sjálfs sé góð en augljóst að „ódýr og óvandaður jaðarbúnaður hafi orsakaða tíðar bilanir og skapað erfiðleika við framleiðsluna“.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, vildi ekki tjá sig við blaðið í gær um ákvörðun stjórnar kísilversins en bankinn lánaði alls átta milljarða króna til verkefnisins. Bankinn færði í haust kröfur og aðrar eignir, þar á meðal allt hlutafé sitt í kísilverinu, niður um 4,8 milljarða króna. Í tilkynningu félagsins í gær segir að gjaldþrot félagsins leiði ekki til frekari niðurfærslna í bókum bankans.  

„Arion banki mun óska eftir því við skiptastjóra þrotabúsins að ganga að veðum sínum í eignum fyrirtækisins en bankinn, sem er stærsti kröfuhafi United Silicon, er einn á fyrsta veðrétti eigna félagsins,“ segir í tilkynningu frá bankanum.




Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×