Innlent

Starfið ekki hættulaust

Linda Blöndal skrifar
Magna Björk hefur starfað fyrir Rauða krossinn undanfarið að því að hefta útbreiðslu Ebólu vírusins í Sierra Leone. Í fimm vikur stýrði hún skipulagninu á rekjanleika smita og því að setja upp teymi sem sá um greftranir. Magna horfði upp á marga lúta í lægra haldi fyrir sjúkdómnum.

Sjálfsagt að hjálpa til

„Upplifunin var kannski ekki svo slæm en ástandið ekki gott. Töluverður ótti og fólk trúði því hreinlega ekki að ebóla væri á svæðinu enda ekki kynnst sjúkdómnum áður“, sagði Magna á Stöð 2 í kvöld. Hún sagðist ekki hafa hugsað sig tvisvar um hvort hún ætti að halda til starfa á svæði smitaðra í Afríku. "Nei, eiginlega ekki. Ég hef haft áhuga á Ebólu í töluverðan tíma og þarna var þörfin og ég var tilbúin og laus og fannst bara sjálfsagt að fara út og hjálpa til.“

Hættustigin misjöfn

Magna sér um námskeið fyrir hjálparstarfsmenni í Evrópu, eins og í Sviss Belgíu og Ítalíu og í dag ræddi hún við þrjátíu manna viðbragðsteymi Landsspítalans á Landakoti sem æfði viðbragðsvarnir í dag, sér í lagi hvernig fara á með hlífðarbúnað. Hún segir þjálfunina vera lykilatriði til að sýkjast ekki.  "Ef maður fylgir ákveðinni smitgát og hegðar sér samkvæmt reglum sem við erum þjálfuð í þá eru líkurnar á smiti litlar. Starfið er þó ekki áhættulaust en áhættustigin eru mismunandi, eftir því hvað maður er að gera og hverju maður er að sinna", sagði hún.

Allir taldir smitaðir

Magna vann í Kailahun héraði í austurhluta Sierra Leone þar sem 400 þúsund manns búa. Allar greftranir miða við að hinn látni sé smitaður og hefur þurft að fræða fólk sérstaklega um það þar sem smithætta er mest af látnu. Meira en 3700 tilfelli af Ebólu eru skráð í landinu og dauðsföll næstum þrettán hundruð.

Breytt umgengni viðlík

Útbreiðsla vírussins er mest í Gíneu, Sierra Leona og Líberíu. Meira en 13.700 hafa sýkst og tæplega 5000 manns dáið úr veikinni sem hefur stungið sér niður í alls sjö löndum. Magna segir að fræða hafi þurf fólk mikið um hvernig umgangast mætti líkin en fólk hefur venjur og siði þar sem það vill með nánum hætti kveðja sína nánustu.

Magna mun áfram vinna i baráttunni gegn faraldrinum á næstu misserum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×