Bíó og sjónvarp

Star Wars IX og ný Indiana Jones komnar með útgáfudaga

Samúel Karl Ólason skrifar
Nokkrir af leikurum og forsvarsmönnum nýju Star Wars myndanna í desember 2015. Þar á meðal er Harrison Ford sem mun einnig leika í nýju Indiana Jones myndinni.
Nokkrir af leikurum og forsvarsmönnum nýju Star Wars myndanna í desember 2015. Þar á meðal er Harrison Ford sem mun einnig leika í nýju Indiana Jones myndinni. Vísir/GETTY
Disney og Lucasfilm tilkynntu í dag útgáfu daga tveggja mynda úr tveimur mjög vinsælum kvikmyndaseríum. Um er að ræða níundu myndina í sápuóperunni um Skywalker fjölskyldunna og þær hamfarir sem sú meðlimir hennar valda í heilli stjörnuþoku. Hin myndin er sú fimmta um fornleifafræðinginn Indiana Jones og misgóð ævintýri hans.

Star Wars: Episode IX verður frumsýnd þann 24. mái 2019 og fimmta myndin um Indiana Jones þann 10. júlí 2020.

Steven Spielberg mun leikstýra myndinni um Indiana Jones og Harrison Ford mun einnig snúa aftur, samkvæmt tilkynningu á vefnum StarWars.com.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×