Leikjavísir

Star Wars Battlefront hasarleikur ársins

Samúel Karl Ólason skrifar
Sigurlína Ingvarsdóttir og hennar fólk hjá Electronic Arts Dice í Svíþjóð voru verðlaunuð í gærkvöldi.
Sigurlína Ingvarsdóttir og hennar fólk hjá Electronic Arts Dice í Svíþjóð voru verðlaunuð í gærkvöldi. Mynd/EA
Star Wars Battlefront var valinn besti hasarleikurinn á D.I.C.E. verðlaunahátíðinni í gær. Íslendingurinn Sigurlína Ingvarsdóttir hafði yfirumsjón yfir gerð leiksins, sem var einnig verðlaunaður fyrir besta hljóðið.

Leikurinn Fallout 4 var valinn leikur ársins, en alls vann leikurinn til þriggja verðlauna og Fallout Shelter vann í flokki snjalltækjaleika. Auk Fallout voru Witcher 3, Rocket League og Ori and the Blind Forest með nokkur verðlaun.

D.I.C.E. verðlaunahátíðin er haldin af Academy of Interactive Arts & Sciences og er ein sú stærsta í leikjabransanum. Lista yfir sigurvega má sjá hér að neðan.

Leikur ársins: Fallout 4

Hasarleikur ársins: Star Wars Battlefront

Bardagaleikur ársins: Mortal Kombat

Fjölskylduleikur ársins: Super Mario Maker

Snjalltækjaleikur ársins: Fallout Shelter

Besta persónan: Lara CroftRise of the Tomb Raider

Besta tónlist: Ori and the Blind Forest

Besta hljóðið: Star Wars Battlefront

Besta sagan: The Witcher 3: Wild Hunt

Tæknileg útfærsla: The Witcher 3: Wild Hunt

Hreyfimyndagerð: Ori and the Blind Forest

Leikræn stjórnun: Ori and the Blind Forest

Besti hlutverka/NetleikurFallout 4

Besti herkænskuleikurinn: Heroes of the Storm

Íþróttaleikur ársins: Rocket league

Kappakstursleikur ársins: FORZA Motorsport 6

Besta spilunin á netinu: Rocket League

Lófatölvuleikur ársins: Helldivers

Mestu tæknilegu áhrifin: Microsoft Basic

Ævintýraleikur ársins: Metal Gear Solid 5

DICE Sprite verðlaunin: Rocket League

Besta leikjahönnunin: The Witcher 3: Wild Hunt

Leikstjórn: Fallout 4

Hér fyrir neðan má hlusta á viðtal við Sigurlínu í Bítinu á Bylgjunni síðan í haust.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×