Handbolti

Standa í vegi fyrir fullkomnun

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Framkonur urðu deildarbikarmeistarar í gær.
Framkonur urðu deildarbikarmeistarar í gær. Vísir/Vilhelm
Árið 2015 var sjötta árið þar sem íslensk kvennahand­boltalið gátu unnið fimm titla á einu og sama árinu. Fjögur lið hafa unnið fjóra titla líkt og Gróttu­stelpur í ár en Seltirninga biðu sömu örlög og hinna þriggja liðanna.

Í öll fjögur skiptin eru það einmitt stelpurnar úr Safamýrinni sem hafa komið í veg fyrir fullkomið ár. Fram vann að þessu sinni Gróttu í æsispennandi undanúrslitaleik en hafði áður tekið fimmta titil ársins fyrir framan nefið á fjórföldu meistaraliði.

Kvennalið Fram bar ábyrgð á því að Valsliðin á árunum 2010 til 2012 náðu aldrei fullu húsi en Hlíðarendaliðið vann 12 af 15 mögulegum titlum á þessum 36 mánuðum.

Framkonur unnu bikarúrslitaleik liðanna fyrstu tvö árin en á síðasta árinu vann Framliðið Valskonur í síðasta leik ársins, úrslitaleik deildabikarsins í Laugardalshöllinni í desember 2012.

Stefán Arnarson var þjálfari Vals­liðsins sem vann fjóra titla þrjú ár í röð. Nú er Stefán hins vegar þjálfari Framliðsins sem kom í veg fyrir að Gróttukonur gerðu sögulegt ár liðsins enn sögulegra.

Gróttuliðið varð bikarmeistari í febrúar, deildarmeistari í mars, Íslandsmeistari í maí og meistari meistaranna í september. Þetta eru fyrstu titlar Gróttu í meistaraflokki kvenna og það hefði vissulega verið magnað að taka fullt hús á slíku ári.

Grafík/Fréttablaðið



Fleiri fréttir

Sjá meira


×