Sport

Stan „The man“ Wawrinka elsti sigurvegarinn á US Open í 46 ár

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Stan Wawrinka með sigurlaunin í nótt en auk bikarsins fékk hann 3,5 milljónir dala.
Stan Wawrinka með sigurlaunin í nótt en auk bikarsins fékk hann 3,5 milljónir dala. vísir/getty
Stan Wawrinka frá Sviss stóð uppi sem sigurvegari á síðasta risamóti ársins í tennis en hann lagði efsta mann heimslistans, Serbann Novak Djokovic, í úrslitum í nótt í fjórum settum; 6-7, 6-4, 7-5 og 6-3.

Djokovic vann fyrsta settið í bráðabana en eftir það tók Svisslendingurinn yfir leikinn og vann opna bandaríska meistaramótið í fyrsta sinn á ferlinum. Þetta er þriðja risatitillinn sem hann bætir í safnið en áður vann hann opna ástralska árið 2014 og svo opna franska í fyrra.

Djokovic gekk ekki alveg heill til skógar í leiknum en í fjórða settinu fékk hann sex mínútna pásu til að láta teipa á sér tána. Hann fór ekki alveg eftir reglunum en dómari leiksins gaf honum séns við litla hrifningu Wawrinka.

„Fyrirgefðu, Stan. Ég bara gat ekki staðið uppréttur,“ sagði Djokovic við Wawrinka áður en þeir héldu leik áfram. Wawrinka lét þetta ekki trufla sig of mikið og kláraði viðureignina með stæl.

Svisslendingurinn, sem er 31 árs gamall, er sá elsti sem fagnar sigri á opna bandaríska í 46 ár eða síðan Ken Rosewall sigraði á mótinu 35 ára gamall árið 1970.

Wawrinka var lengi að springa út en hann komst ekki í úrslitaleik fyrr en hann var orðinn 28 ára gamall. Honum líður aftur á móti afskaplega vel í úrslitaleikjum. Wawrinka er nú búinn að vinna ellefu úrslitaleiki í röð, þar af alla þrjá sem hann hefur spilað á risamótum og í hvert sinn hefur hann unnið efsta mann heimslistans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×