Innlent

Stál í stál í kjaraviðræðum sjómanna og útgerðarmanna

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Skipin liggja nú bundin við bryggju.
Skipin liggja nú bundin við bryggju. MYND/Vilhelm
Allt stefnir í að sjómenn verði í verkfalli fram á næsta ár. Stál í stál er í kjaraviðræðum þeirra og útgerðarmanna og samninganefndir munu ekki funda aftur fyrr en eftir áramótin. Fiskvinnsla hefur þegar stöðvast víða um land.

Vika er nú síðan að verkfall sjómanna hófst á ný og þrjú þúsund og fimm hundruð sjómenn lögðu niður störf. Samninganefndir sjómanna og útgerðarmanna funduðu í dag í fyrsta sinn frá því sjómenn felldu kjarasamninga. Fundurinn stóð aðeins í hálftíma.

„Mér sýnist það bera mikið á milli og það er nú eiginlega stál í stál með þetta allt saman núna,“ segir Valmundur Valmundsson formaður Sjómannasambands Íslands.

„Ég held að við getum í það minnsta verið sammála um það að staðan er erfið og alvarleg,“ segir Heiðrún Lind Marteinsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.

„Ég held að við kælum okkur yfir jólin og njótum þeirra með okkar fjölskyldum og svo hittumst við á nýjum ári,“ segir Valmundur. Hann á von á að sjómenn verði verkfalli fram á næsta ár.

Verkfall sjómanna hefur þegar haft töluverð áhrif á útgerðarfyrirtækin og stór hluti fiskvinnslu hefur stöðvast. „Við ætluðum að vera í vinnslu núna þessa þrjá daga sem eru að líða af þessari viku á Akranesi. Þannig að þar dettur sú vinnsla niður,“ segir Vilhjálmur Vilhjálmsson forstjóri HB Granda.

Vilhjálmur segir að þetta sé sá tími þegar starfsfólk í fiskvinnslustöðvum sé að jafnaði að fara í jólafrí. Það mæti svo aftur til vinnu 2. janúar. Ef sjómenn verða ekki farnir aftur til veiða þá þá verði ekkert hráefni til að vinna úr. Hann segir að fyrirtækið selji fiskafurðir fyrir um hundrað milljónir króna á dag alla virka daga ársins. Verkfallið hafi því mikil áhrif ef það dregst á langinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×