Erlent

Stal bjór klæddur sem Batman og Captain America

Samúel Karl Ólason skrifar
Lögreglan í Salamanca í Bandaríkjunum leitar nú að heldur óhefðbundnum þjófi. Hann var klæddur sem ofurhetja, eða í raun tvær, en ákvað að vera taka að sér hlutverk vonda karlsins.

Maðurinn sem stal tveimur átján bjóra pakkningum af Budweiser bjór var klæddur í búning Batman og með hettu Captain America.

Þar hefur þjófurinn blandað saman ofurhetjubúningum, en hann er sagður hafa hlaupið á brott.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×