Stakk sér ofan í undirheimana

Fréttablaðið Lífið 06. febrúar 2012 20:00
Jóhannes Haukur Jóhannesson, vinur Þorvaldar Davíðs, sem einnig leikur í Svartur á leik, æfði stíft og bætti á sig miklum vöðvum fyrir sitt hlutverk.
Jóhannes Haukur Jóhannesson, vinur Þorvaldar Davíðs, sem einnig leikur í Svartur á leik, æfði stíft og bætti á sig miklum vöðvum fyrir sitt hlutverk. "Ég þurfti hins vegar að grenna mig,“ segir Þorvaldur Davíð. "Það var sameiginleg ákvörðun mín og leikstjórans að hafa Stebba mjóan og dálítið klikkaðan.“ fréttablaðið/anton
„Ég hef verið á milljón síðan ég kom, í ýmsu stússi fyrir myndina og svo er ég líka að skoða önnur verkefni fyrir árið. Á þeim vígstöðvum er ýmislegt á seyði en ekkert þó svo fast í hendi að ég geti greint frá því. Reyndar hef ég ekki tölu á því hversu oft ég hef flogið fram og til baka í vetur og gæti best trúað því að svona verði það næstu árin. Þetta er ansi mikið flakk," segir leikarinn Þorvaldur Davíð Kristjánsson þegar hann sest niður með blaðamanni á Kaffivagninum í örstuttu stoppi hér á landi.

Þorvaldur býr í Los Angeles á vesturströnd Bandaríkjanna en hyggst heimsækja Ísland aftur í lok mánaðarins vegna frumsýningar kvikmyndarinnar Svartur á leik í leikstjórn Óskars Þórs Axelssonar. Þorvaldur fer með sitt fyrsta aðalhlutverk í myndinni og er að vonum spenntur fyrir útkomunni.


Fór á rúntinn í dóp-partí
Svartur á leik er byggð á samnefndri skáldsögu Stefáns Mána frá árinu 2004 og fjallar um átök í undirheimum Reykjavíkur, sem er ekki lengur lítil, saklaus borg, í kringum aldamótin síðustu. Þorvaldur fer með hlutverk ungs manns að vestan, Stefáns Kormáks Jónssonar (nafn sem myndi hæfa presti í Kollafjarðarnesi, eins og Þorvaldur Davíð kemst að orði) sem ávinnur sér gælunafnið Stebbi „psycho" eftir því sem á líður söguþráðinn. Stebbi flytur í bæinn, gengur illa í Iðnskólanum og flækist inn í heim glæpa og eiturlyfja.

Þetta eru þá væntanlega dekkstu hliðar Reykjavíkur sem kafað er ofan í?

„Já. Í raun fjallar myndin öðrum þræði um þróun íslensks glæpaheims, hversu mikil harka hljóp í hann á þessum tíma í kringum aldamótin, og þessi heimur verður sífellt hrottalegri. Persónan sem ég leik, Stebbi „psycho", hittir gamlan kunningja sinn frá sveitaplássinu fyrir vestan, Tóta, og biður hann um að gera sér greiða. Tóti er sjóaður í bransanum og þegar fólk er byrjað að þiggja greiða í þessum heimi er erfitt að komast út úr þeim vítahring. Stebba finnst þetta spennandi til að byrja með en eftir því sem hann sekkur dýpra og grefur upp meiri skít líður honum verr og verr og fer nánast niður til helvítis. Samt á hann erfitt með að losa sig. Þannig er nú fíknin."

Hvernig undirbjóstu þig fyrir hlutverkið?

„Ég lagðist í meðvitaða rannsóknarvinnu, fór meðal annars á rúntinn með eiturlyfjasölum og í nokkur dóp-partí. Ísland er svo lítið land og einhver þekkir alltaf einhvern. Það þurfti bara nokkur símtöl til og ég var kannski kominn í partí á þriðjudagskvöldi þar sem flestir voru í neyslu. Í þessum heimi er keyrsla allan sólarhringinn og engu skiptir hvaða dagur er. Þetta var vissulega skrýtið að ganga í gegnum þessa reynslu. Dapurlegast þótti mér að horfa í augun á mörgum og merkja falinn harm sem leynist í þeim. Flestir sem eru í neyslu vilja komast út úr henni en vita ekki hvernig þeir eiga að fara að því. Þegar ég bý til karakter í samvinnu við leikstjórann reyni ég að skilja hvernig sá karakter hugsar, stúdera muninn á samfélaginu nú og þá og reyni að skilja neysluna, hvernig líkaminn bregst við ákveðnum fíkniefnum. Ég vinn dálítið eins og rannsóknarlögreglumaður. Leita að vísbendingum og einhvers konar svari, sem þó er aldrei fullmótað því manneskjan er svo margbreytileg."


Raunveruleg mynd af Reykjavík
Undirheimarnir eru fullir af ofbeldi, eins og þú bendir á, og myndin væntanlega líka. Mun Svartur á leik hneyksla áhorfendur?
„Myndin gæti eflaust hneykslað ákveðinn aldurshóp. En best gæti ég trúað að fólk verði fyrst og fremst sjokkerað að sjá að svona er raunveruleikinn. Mörg af atvikunum í myndinni eru byggð á sönnum atburðum og eru því raunveruleg."

Mæddi mikið á þér í þínu fyrsta aðalhlutverki við upptökur á myndinni?

„Já, því ég leik aðalsöguhetjuna, sögumanninn, og kem fyrir í næstum hverju einasta atriði í myndinni. Ég var alltaf á staðnum og þetta voru langir vinnudagar. Sumir halda að það sé eintómur glamúr að leika í bíómynd, en það er lítill glamúr í því að bíða blautur í kaldri rútu í Hvalfirði um miðja nótt eða láta berja sig í snjónum. Að því sögðu var þetta auðvitað yndisleg reynsla og algjör forréttindi að taka þátt í gerð myndarinnar."

Reyndu upptökurnar á þig líkamlega?

„Slagsmálaatriði og kynlífssenur reyna á mann bæði líkamlega og andlega. Þessi mynd er í raun eitt stórt adrenalínrúss og tók virkilega á. Ég fann ekki fyrir miklu stressi, en þjáðist af svefnleysi og á tímabili var ég kominn með álagsbólur á vangana. Bólurnar sjást í myndinni og ég er enn að berjast fyrir því að þær verði teknar fram í kreditlistanum í lok myndarinnar. Það getur líka vel verið að öll þessi neikvæða orka í kringum þennan heim sem ég setti mig inn í hafi haft sitt að segja. Ég trúi á samband líkama og sálar, þótt ég sé alls enginn spíritisti."


Áhugamálin setið á hakanum
Síðustu fjögur árin hefur Þorvaldur stundað leiklistarnám í hinum virta Juilliard-listaháskóla í New York, en hann útskrifaðist úr skólanum í vor.

Hvernig er svo tilfinningin að vera útskrifaður leikari?

„Hún er góð. Ég hef auðvitað leikið á sviði frá því ég var tólf ára patti, en það var mikill léttir að útskrifast því þetta var að vissu leyti erfitt nám. Frábært nám og gagnlegt, en gerði það að verkum að ég hafði lítið svigrúm til að láta hugann reika og öll áhugamál sátu á hakanum. Það tók líka dálítið á að vera útlendingur og leika á öðru tungumáli en ég er vanur. Í raun og veru er ég fyrst að ná áttum núna eftir þetta allt saman."

Þú segir áhugamálin hafa setið á hakanum, hafðirðu þá engan tíma til að spila fótbolta?

„Nei, ekki enn þá en núna er ég að leita mér að fótboltahópi í Los Angeles til að spila með. Ég var mikið í fótbolta fram að fimmtán ára aldri eða svo og var nokkuð góður, spilaði með fantagóðu liði Þróttar, varð Íslandsmeistari í 6. flokki og nokkrum sinnum Reykjavíkurmeistari. En ég var alltaf frekar lítill, dálítið tilfinninganæmur listamaður líklega, og held ég hafi valið rétt þegar ég valdi leiklistina fram yfir boltann. Fótboltinn fer þó aldrei úr mér og mér finnst rosalega gaman að spila hann."

Í náminu fæddist þó annað áhugamál hjá þér, tónlistin, sem varð til þess að þú hefur gefið út nokkur lög?

„Já, ég byrjaði að læra á gítar til að bæta samhæfinguna, að gera nokkra hluti í einu eins og að syngja og spila, gagngert til að verða betri leikari. Svo fór ég að semja lög [lagið Sumarsaga sem Þorvaldur Davíð samdi ásamt æskuvini sínum, grínistanum og rithöfundinum Sólmundi Hólm, náði nokkrum vinsældum sumarið 2009] og geri enn. Einhvern tíma geri ég plötu, en fyrst og fremst er tónlistin áhugamál hjá mér. Ég hlusta á flestar tegundir af tónlist og læt skapið ráða för. Þegar ég fer út að skokka hef ég Metallica í botni, Chopin hlusta ég á meðan ég læri, Stevie Wonder þegar ég er að koma mér í gírinn og svo framvegis."


Best að leika á íslensku
Eins og áður sagði flutti Þorvaldur Davíð frá New York til Los Angeles ásamt Hrafntinnu Karlsdóttur unnustu sinni og hefur parið nýlega komið sér fyrir í íbúð í austurhluta Hollywood Hills-hverfisins. Leikarinn er þar með samning við umboðsskrifstofu og segist hafa í hyggju að einbeita sér fyrst og fremst að kvikmyndaleik á næstunni, þótt hann sé reiðubúinn að skoða verkefni hvar og hvernig sem þau bjóðast.

„Skemmtilegast finnst mér þó að leika á íslensku, því tungumálið er í mér. Ég kann mjög vel við mig í Los Angeles og borgin er skemmtilegri en ég þorði að vona. Í New York labbaði maður um allt en í Los Angeles er maður alltaf að krúsa um með K-EARTH 101 í útvarpinu og njóta sín í sólinni. Kærastan mín er mikil félagsvera og við erum aðeins farin að kynnast fólki, ætlum til dæmis að mæta á þorrablótið sem verður haldið í byrjun mars. Ég get vel hugsað mér að búa í Los Angeles næstu árin, en við sjáum hvað setur."

Fleiri fréttir - Lífið

Lífið 26. maí. 2012 13:00

Anchorman mjög vinsæl

Það hefur komið gamanleikaranum Will Ferrell mjög á óvart hversu margir vilja taka þátt í ...  

Meira
Lífið 26. maí. 2012 10:15

Paris situr fyrir í Cannes

Paris Hilton sat fyrir hjá ljósmyndaranum Ellen Von Unwerth á kvikmyndahátíðinni í Cannes ...  

Meira
Lífið 26. maí. 2012 11:00

Aldrei reynt við Rafaeli

Fyrirsætan Bar Rafaeli, fyrrverandi kærasta leikarans Leonardos DiCaprio, hefur kvartað yf...  

Meira
Lífið 26. maí. 2012 09:30

Tölvan lagar röddina

Will.i.am úr hljómsveitinni Black Eyed Peas þarf á hjálp tölvutækninnar að halda þegar han...  

Meira
Lífið 26. maí. 2012 08:30

Óþægilegt á nærbuxunum

Zac Efron segir að það hafi verið krefjandi að leika í myndinni The Paperboy og að hlutver...  

Meira
Lífið 26. maí. 2012 08:00

Hrefna Rósa blandar sósur

„Mig langar að gera gúrmevöru aðgengilegri fyrir almenning,“ segir kokkurinn H...  

Meira
Lífið 26. maí. 2012 07:00

Sjö tomma frá Retro

Hljómsveitin Retro Stefson hefur sent frá sér sjö tommu vínylplötu með laginu Qween. Á B-h...  

Meira
Lífið 26. maí. 2012 06:30

Pósa nakin fyrir sýningu í Ósló

„Rauði þráðurinn í gegnum sýninguna er okkar upplifun af umhverfinu sem við erum í,&...  

Meira
Lífið 26. maí. 2012 03:13

Williams á von á dóttur

Robbie Williams á von á dóttur með eiginkonu sinni Ayda Field. Söngvarinn er mjög spenntur...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 16:30

Ólafur og Dorrit heimsækja Landspítalann við Hringbraut

Meðfylgjandi myndir voru teknar í gær þegar forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson og Dorr...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 16:30

Vel heppnuð endurkoma Roses

Breska hljómsveitin The Stone Roses spilaði óvænt á sínum fyrstu tónleikum í sextán ár í b...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 16:00

Skreytir Gretu Salóme

Gullsmiðurinn Sigurður Ingi, hönnuðurinn á bak við Sign skartgripalínuna sér um skraut Gre...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 15:15

Halló Neon!

Sumarið er tíminn og með sumrinu koma litirnir. Nú í ár eru litirnir heldur skærari en áðu...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 14:30

Tekinn fram yfir þekkta norska leikara

"Þetta er ein af þessum stóru auglýsingum sem maður vill gjarnan næla sér í,“ segir ...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 14:15

Britney fersk í X-Factor

Söngkonan Britney Spears, 30 ára, var brosandi klædd í bleikan kjól þegar hún mætti í töku...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 14:00

Hundar bjarga lífum

Hundar eru ekki aðeins besti vinur mannsins heldur eru þeir einnig taldir heilsubætandi. H...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 13:30

Græða á götutísku

Scott Schuman og Garance Doré halda úti tískublogginu The Sartorialist, sem hefur lengi ve...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 12:30

Barnshafandi Uma Thurman

Leikkonan Uma Thurman, 42 ára, var mynduð á hraðferð í New York í gær með djús í hendi og ...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 11:30

Frægir stíga út úr skápnum

Bandaríski leikarinn Jim Parsons, sem þekktastur er fyrir túlkun sína á hinum elskulega en...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 11:15

Sigga hefur tröllatrú á Gretu og Jónsa

"Ég er stödd á Spáni og mun horfa á keppnina með fjölskyldunni hérna úti. Ég hlakka mikið ...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 10:30

Horfir á Eurovision í faðmi fjölskyldunnar

"Ég verð heima hjá mér með fjölskyldu minni og horfi á Ísland taka þátt. Ég skipti svo sna...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 09:45

Opnunargleði Górillu

Viðburðabarinn Górillan stimplaði sig inn með látum í skemmtanalíf miðborgarinnar í síðust...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 09:00

Helgarmaturinn - Matti gefur góða Eurovision-uppskrift

Matthías Matthíasson söngvari með meiru gefur okkur uppskrift að dýrindis laxi með góðu sa...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 08:00

Júniform lokar

Birta Björnsdóttir, fatahönnuður sem rekið hefur verslunina Júniform í tíu farsæl ár heldu...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 16:00

Nýtt andlit Material Girl

Georgia May Jagger, dóttir tónlistarmannsins Micks Jagger og fyrirsætunnar Jerry Hall, er ...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 15:00

Kristján samdi fyrir Klaufana

Skerjafjarðarskáldið Kristján Hreinsson samdi nánast öll lög og texta á væntanlegri plötu ...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 11:00

Glymskrattinn í leikhúskjallaranum

Dans-og tónleikaverkið Glymskrattinn var frumsýnt á miðvikudaginn í Þjóðleikhúskjallaranum...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 10:15

Styrkja UN Women

Tónleikar til styrktar UN Women fara fram á Gauki á Stöng í kvöld. Það er vefverslunin Gog...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 10:00

Depp ættleiddur

Leikarinn Johnny Depp var ættleiddur af Comanche-indíánum frá Nýju Mexíkó og tilheyrir nú ...  

Meira
Lífið 25. maí. 2012 09:00

Bassi heitir loksins Bassi

„Ég er ekkert þekktur sem Björn þannig að það lá einhvern veginn beint við að kýla þ...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 23:37

Jim "Sheldon" Parsons kominn út úr skápnum

Bandaríski leikarinn Jim Parsons, sem þekktastur er fyrir túlkun sína á hinum elskulega en...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 21:30

Fimmta Die Hard-myndin vonandi sú besta

Bruce Willis vill að fimmta Die Hard-myndin verði betri en sú fyrsta í seríunni. Hann samþ...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 17:30

Ótrúlegt að fá Þursaflokkinn

"Það er ótrúlegt að fá þá því þeir spila svo sjaldan,“ segir grínistinn Ari Eldjárn....  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 17:00

Katherine Heigl með ættleidda dóttur sína

Leikkonan Katherine Heigl var á ferðinni með nýjasta meðlim fjölskyldunnar í Beverly Hills...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 16:30

Will Smith með alla fjölskylduna á frumsýningu

Will Smith, Jada Pinkett Smith, Jayden Smith, og Willow Smith mættu saman til frumsýninga...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 14:30

Kossaflens í Cannes

Twilight stjörnurnar Rob Pattinson, 26 ára, og Kristen Stewart voru innileg við hvort anna...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 14:30

Nicole Scherzinger glæsileg í rauðum kjól

Söngkonan Nicole Scherzinger var glæsileg að sjá í gærkvöldi er hún fór út að borða á Nobu...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 13:30

Ástfangin Kim

Sjónvarpsstjarnan Kim Kardashian og unnusti hennar tónlistarmaðurinn Kanye West leiddust í...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 11:30

Rihanna og Jennifer Lopez slógu í gegn á Idol sviðinu

Hún var ekki af verri endanum sýningin sem boðin var upp á í lokaþætti American Idol sem f...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 11:30

Bono örlátur

Bono, söngvari U2, yfirgaf veitingahús í London ásamt eiginkonu sinni Nancy Shevell...Bono...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 10:30

Hrærð Idol stjarna

Phillip Phillips sigraði American Idol með sóma í nótt en lokaþátturinn fór fram í Nokia l...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 18:15

Vill ekki vera stjarna

Leikarinn Tom Hardy hefur engan áhuga á að vera kvikmyndastjarna sem er sífellt í sviðsljó...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 17:00

Kosin kynþokkafyllst

Ísraelska fyrirsætan Bar Refaeli var á dögunum kosin kynþokkafyllsta kona í heimi af lesen...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 15:00

Einsamall í Cannes

Leikarinn Brad Pitt mætti einn síns liðs á rauða dregilinn í Cannes í vikunni. Unnusta han...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 15:00

Gisele ólétt?

Ofurfyrirsætan Gisele Bundchen er ólétt að sínu öðru barni ef marka má slúðurmiðla vestan ...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 14:30

Meiri Hungurleikar

Önnur bókin í þríleik Suzanne Collins um Hungurleikana, Eldar kvikna, er að koma út hjá Fo...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 13:00

Dramatísk helgi í bíóhúsunum

Gelgjutryllirinn Zac Efron sýnir á sér nýjar hliðar í dramamyndinni The Lucky One sem var ...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 12:30

Bölvun hvílir á hlutverki Galifianakis

Gamanleikarinn Zach Galifianakis er talinn líklegur til að fara með hlutverk Ignatius Jacq...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 12:30

Fyrsta stiklan úr The Great Gatsby

Fyrsta stiklan úr myndinni The Great Gatsby með Leonardo DiCaprio og Carey Mulligan í aðal...  

Meira
Lífið 24. maí. 2012 11:00

Bítlamynd á þrjár milljónir

Sjaldséð ljósmynd af Bítlunum að labba í „hina áttina“ yfir gangbrautina á ums...  

Meira
Tarot
Hugsaðu þér, eða skrifaðu spurningu og dragðu þér spádómsspil
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Lífið - Yfir / Lífið / Stakk sér ofan í undirheimana