Fótbolti

Stærstu lið Norðurlanda verða hluti af nýrri ofurdeild í Evrópu

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Landsliðsmiðvörðurinn Kári Árnason spilar með Malmö.
Landsliðsmiðvörðurinn Kári Árnason spilar með Malmö. vísir/getty
Stærstu fótboltalið Norðurlanda gætu yfirgefið sínar deildir eftir nokkur ár og einbeitt sér að því að spila í nýrri ofurdeild á meginlandi Evrópu. Viðræður eru nú þegar hafnar.

Danska dagblaðið BT greinir frá því í morgun að viðræður stórliðsins FCK í Kaupmannahöfn við forráðamenn nýju deildarinnar eru nú þegar hafnar og SVT í Svíþjóð segir frá því að Malmö, lið Kára Árnasonar, er einnig að íhuga alvarlega að taka þátt í nýju deildinni.

Auk liðanna á Norðurlöndum verða í nýju deildinni stórlið frá Hollandi, Belgíu og Skotlandi og þar er um að ræða stærstu lið landanna. Ajax og PSV verða frá Hollandi, Anderlecht og Club Brugge frá Belgíu, Celtic og Rangers frá Skotlandi og svo Rosenborg frá Noregi. Einnig hefur verið haft samband við Bröndby, samkvæmt frétt BT.

Ekki verður hægt að hefja leik í nýrri deild fyrr en 2021 þegar ríkjandi samningur um Meistaradeildina rennur út en eftir það virðist nokkuð líklegt að þessi nýja deild verði að veruleika. Liðin sem ætla að taka þátt í henni eru verulega hrædd um að missa af lestinni í baráttunni við stóru strákana á Englandi, Spáni, Þýskalandi og Ítalíu.

„Ef við bregðumst ekki við þá verða stóru félögin bara stærri og sterkari og allt verður erfiðara fyrir félag eins og okkur. Við verðum að horfa til möguleika okkar á alþjóða vettvangi,“ segir Anders Hörsholt, framkvæmdastjóri FC Kaupmannahafnar, í viðtali við BT.

„Þetta er eitthvað sem við þurfum að gera til að verða samkeppnishæfir. Vissulega gæti þetta orðið til þess að FCK búi til nýja Evrópudeild og hætti deildunum í sínum heimalöndum,“ segir Hörsholt.

Malmö-menn vildu ekkert ræða við SVT þegar haft var samband við þá. Niclas Carlén sagði við sænska ríkisútvarpið að þetta væri enn á viðræðustigi og yrði frekar rætt á næsta ársþingi sænsku úrvalsdeildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×