Sport

Stærsti viðburður ársins í UFC í kvöld

Pétur Marinó Jónsson skrifar
Brock Lesnar í vigtuninni í gær.
Brock Lesnar í vigtuninni í gær. Vísir/Getty
Það má segja að jólin séu í kvöld fyrir bardagaaðdáendur. UFC 200 er í kvöld og er óhætt að segja að þetta sé eitt stærsta bardagakvöld allra tíma.

Tveir titilbardagar verða á dagskrá og er kvöldið hlaðið stórum nöfnum. Af þeim tíu bardagamönnum sem berjast á aðalhluta bardagakvöldsins hafa níu af þeim annað hvort verið meistarar eða barist um titil.

Það voru auðvitað mikil vonbrigði þegar Jon Jones datt út eftir að hafa fallið á lyfjaprófi en UFC gerði það besta í stöðunni og fékk Anderson Silva í staðinn. Silva er að margra mati sá besti í sögunni og mætir Daniel Cormier með aðeins tveggja daga fyrirvara.

Vissulega er Silva orðinn 41 árs gamall og er langt síðan hann vann bardaga síðast en eins og síðustu tvo ár hafa sýnt okkur er aldrei hægt að útiloka neitt í MMA.

Í aðalbardaganum mætast þær Miesha Tate og Amanda Nunes um bantamvigtartitilinn. Þetta verður fyrsta titilvörn Mieshu Tate en Tate tók beltið af Holly Holm fyrr á þessu ári.

Jötuninn Brock Lesnar snýr aftur eftir rúm fjögur ár frá íþróttinni. Þessi fyrrum þungavigtarmeistari UFC var stór stjarna í fjölbragðaglímunni og ætlar nú að taka að minnsta kosti einn bardaga í viðbót. Lesnar, sem passar varla í stærsta hanskapar UFC, mætir Mark Hunt. Hunt er einn mesti rotarinn í þungavigtinni og er ekki með flókna leikáætlun fyrir bardagann. Hann ætlar bara að kýla Lesnar á trýnið.

Fyrrum fjaðurvigtarmeistarinn Jose Aldo snýr aftur eftir 13 sekúndna tap sitt gegn Conor McGregor. Aldo mætir fyrrum léttvigtarmeistaranum Frankie Edgar um bráðabirgðartitilinn (e. interim title) í fjaðurvigtinni. Sigurvegarinn mun svo skora á Conor McGregor. Aldo og Edgar áttust við árið 2012 og þar fór Aldo með sigur af hólmi eftir gríðarlega jafnan bardaga.

Síðast en ekki síst fáum við svo endurkomu hjá fyrrum þungavigtarmeistaranum, Cain Velasquez. Hann mætir kærasta Rondu Rousey, Travis Browne, í fyrsta bardaga kvöldsins á aðalhluta bardagakvöldsins. Velasquez hefur verið þjakaður af meiðslum á undanförnum árum en þegar hann er upp á sitt besta er hann besti þungavigtarmaður heims. Verður hann sama mulningsvél og hann var gegn Travis Browne í kvöld?

Bardagakvöldið er svo troðið af stórum nöfnum að fyrrum bantamvigtarmeistarinn (T.J. Dillashaw) og fyrrum veltivigtarmeistarinn (Johny Hendricks) eru hluti af upphitunarbardögunum.

Þetta er veisla sem enginn sannur bardagaaðdáandi má missa af. Bardagaveislan hefst kl 2 í nótt og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

MMA

Tengdar fréttir

Hvernig kemur Jose Aldo til baka?

Fyrrum fjaðurvigtarkóngurinn Jose Aldo snýr aftur í kvöld eftir 13 sekúndna tap sitt gegn Conor McGregor. Aldo stendur nú á ákveðnum krossgötum og verður afar áhugavert að sjá hvernig hann kemur til baka eftir sitt fyrsta tap í tíu ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×