Viðskipti erlent

Stærsta yfirtaka ársins

Sæunn Gísladóttir skrifar
Höfuðstöðvar Monsanto í St. Louis-borg í Missouri-fylki Bandaríkjanna.
Höfuðstöðvar Monsanto í St. Louis-borg í Missouri-fylki Bandaríkjanna. vísir/afp
Þýski lyfjarisinn Bayer hefur tilkynnt um yfirtöku á bandaríska fyrirtækinu Monsanto. Andvirði samningsins er 66 milljarðar dala, jafnvirði rúmlega 7.500 milljarða króna. Monsanto fær tæplega fimmtán þúsund krónur á hvern keyptan hlut. Um er að ræða stærstu yfirtöku ársins.

Monsanto framleiðir og þróar erfðabreytt fræ fyrir matvæli á borð við maís, sojabaunir og hveiti. Auk lyfjaframleiðslu framleiðir og þróar Bayer skordýraeitur fyrir akuryrkju og erfðabreytt matvæli undir nafninu Bayer CropScience. Með fyrirhuguðum samruna vonast Bayer til að verða langstærsti framleiðandi erfðabreyttra fræja fyrir matvæli á heimsvísu, með 25 prósenta markaðshlutdeild á heimsvísu.

Eigendur Monsanto höfðu áður hafnað rétt rúmlega sjö þúsund milljarða króna tilboði Bayer.

Hið hækkaða tilboð Bayer kemur í kjölfar samruna keppinauta. Fréttastofa BBC greinir frá því að óvíst sé að samkeppniseftirlit Bandaríkjanna samþykki samruna Bayer og Mon­santo vegna stærðar fyrirtækjanna tveggja.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×