Innlent

Stærð rjúpnastofnsins undir meðallagi

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Sveiflur á stofni rjúpunnar hafa breyst mikið frá friðun hennar.
Sveiflur á stofni rjúpunnar hafa breyst mikið frá friðun hennar. fréttablaðið/pjetur
„Rjúpnatalningum á vegum Náttúrufræðistofnunar Íslands vorið 2015 er lokið,“ segir í fréttatilkynningu Náttúrufræðistofnunar Íslands frá því í gær. Alls voru taldir 1.308 karrar sem stofnunin telur vera um eitt prósent heildarfjölda. Stærð stofnsins nú er undir sögulegu meðallagi.

Talningar í ár gengu illa vegna tíðarfars en alls voru karrar taldir á 36 svæðum í öllum landshlutum.

Minnkun stofnsins á Suðvesturlandi og Vestfjörðum var talsverð. Á Suðvesturlandi sáust 28 prósentum færri karrar en í fyrra og á Vestfjörðum sáust 43 prósentum færri karrar en í fyrra.

Mest fjölgun var hins vegar á Norðausturlandi en þar sáust 39 prósentum fleiri karrar en í fyrra.

„Í sögulegu samhengi er rjúpnafjöldinn 2015 undir meðallagi alls staðar nema á Norðausturlandi og Austurlandi,“ segir í tilkynningunni.

Náttúrufræðistofnun segir í tilkynningunni að sveiflur í stofnstærð hafi áður tekið tíu til tólf ár en það hafi breyst frá friðun rjúpunnar árin 2003 og 2004. Stofnunin segir nú skemmra milli hámarka stofnsins.

„Mat á veiðiþoli rjúpnastofnsins og nánari greining á ástæðum fjölgunar munu liggja fyrir í ágúst í kjölfar mælinga á varpárangri rjúpna, afföllum 2014 til 2015 og veiði 2014,“ segir í tilkynningunni. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×