Lífið

Staðnir að verki útataðir í málningu

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Pabbinn stendur frammi fyrir þeirri erfiðu ákvörðun að skamma drengina - þrátt fyrir að ná varla að hemja hláturinn.
Pabbinn stendur frammi fyrir þeirri erfiðu ákvörðun að skamma drengina - þrátt fyrir að ná varla að hemja hláturinn. mynd/skjáskot
Myndband af bræðrum, sem útataðir eru í málningu, hefur gengið sem eldur í sinu um veraldarvefinn að undanförnu.

Bræðurnir eru með eindæmum krúttlegir þegar faðir þeirra stendur þá að verki og spyr hvað gengið hefur á.  Þeir spyrja sakleysislega hvort það sé einhver málning á þeim og á pabbinn erfitt með að hemja hláturinn. Bræðurnir hins vegar skilja hvorki upp né niður í pabba þeirra.

Yfir átta milljónir hafa horft á myndbandið en það má sjá hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×