Erlent

Staðfest tala látinna komin yfir hundrað

vísir/afp
Staðfest tala látinna eftir ferjuslysið í Suður Kóreu á dögunum er nú komin í hundrað og fjóra, en 198 er enn saknað. Kafarar vinna enn hörðum höndum við að ná líkum úr skipinu sem fór á hliðina og sökk á um tveimur tímum í síðustu viku.

Ástæða slyssins er enn ókunn en sjö skipverjar eru nú í haldi lögreglu. Þeir sæta harðri gagnrýni fyrir að hafa ekki flutt fólk frá borði fyrr en gert var.

Fólkinu var þvert á móti skipað að halda sig í vistarverum sínum þegar slagsíðan kom á skipið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×