Viðskipti innlent

Staðan áfram erfið

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Íbúðalánasjóður mun áfram glíma við vanda.
Íbúðalánasjóður mun áfram glíma við vanda. fréttablaðið/ernir
Áfram verður tap á rekstri Íbúðalánasjóðs og eiginfjárstaða sjóðsins verður slæm áfram. Sjóðurinn verður áfram háður framlögum úr ríkissjóði. Þetta er mat lánshæfismatsfyrirtækisins Moody's sem birti álit í dag. Moody's gefur Íbúðalánasjóði einkunnina Ba1 með stöðugum horfum. Það er óbreytt einkunn.

Moody's segir að mörg vandræðalán hafi slæm áhrif á eiginfjárstöðu sjóðsins.

Moody's segir að ríkissjóður hafi lagt Íbúðalánasjóði til 51 milljarð króna frá hruni, en þrátt fyrir það nái sjóðurinn ekki fimm prósenta eiginfjárhlutfalli. Íbúðalánasjóður muni líklegast veita sjóðnum áfram framlag.

Þá segir Moody's að fyrirhugaðar skuldaniðurfellingar muni leiða til þess að eignasafn Íbúðalánasjóðs verði betra þegar vandræðalánum fækkar. Þetta muni hafa jákvæð áhrif á eiginfjárstöðu sjóðsins. Áframhaldandi uppgreiðslur lánþega sjóðsins muni hins vegar reynast honum erfiðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×