Innlent

Staða fanga rædd á Alþingi: „Auðvitað ætti að vera sálfræðingur á hverri starfsstöð“

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Birgitta Jónsdóttir og Sigríður Á. Andersen.
Birgitta Jónsdóttir og Sigríður Á. Andersen. Vísir/Stefán/Eyþór
Sérstök umræða fór fram um stöðu fanga á Alþingi í dag. Birgitta Jónsdóttir, þingkona Pírata, gagnrýndi að aðeins tveir sálfræðingar væru í vinnu hjá Fangelsismálastofnun. Dómsmálaráðherra upplýsti um að Fangelsismálastofnun teldi að stór hluti fanga þurfi á sálfræðimeðferð að halda.

„Það vita allir sem fylgjast með þessum málaflokki að það er brýn þörf á fleiri sálfræðingum í fangelsi,“ sagði Birgitta og gagnrýndi að aðeins tveir sálfræðingar séu að störfum hjá Fangelsismálastofnun. Sagðist Birgitta hafa upplýsingar um að föngum á Akureyri byðist til að mynda ekki sálfræðiþjónusta.

Fangi í fangelsinu Akureyri lést í dag eftir að hafa framið sjálfsvígstilraun í fangelsinu og vonaðist Birgitta til þess að föngum í fangelsinu byðist áfallahjálp og sálfræðiþjónustu vegna láts fangans. Taldi Birgitta það eðlilegt að sálfræðingur væri að störfum í hverri starfstöð fangelsismálastofnunar.

„Auðvitað ætti að vera sálfræðingur á hverri starfstöð. Það hljóta allir að vera sammála því að sjúkt fólk eigi ekki að vera vistað í fangelsum,“ sagði Birgitta sem spurði hvernig vinnu starfshóps um málefni geðsjúkra fanga miðaði.

Erfitt að manna stöður sálfræðinga

Í svörum Sigríðar Á. Andersen, dómsmálaráðherra, kom fram að almennt hafi vægi vistunar utan fangelsa verið rýmkað, til dæmis með auknu rafrænu eftirliti eða samfélagsþjónustu í stað fangelsisvistar. Hún viðurkenndi þó að staða geðsjúkra fanga væri bágborinn.

„Það liggur alveg fyrir að þessa þjónustu þurfi að bæta,“ sagði Sigríður og bætti við að Fangelsismálastofnun mæti stöðu mála svo að stór hluti fanga þyrfti á meðferðarinngripi að halda svo draga mætti úr endurkomutíðni fanga í fangelsi.

Sagði hún einnig að erfitt hefði verið að manna þessar sálfræðistöður. Þá sagði hún að vinnu starfshópsins væri ekki lokið. Vinna hans væri hluti að vinnu fullnustuáætlun sem myndi ljúka á næstu vikum. Við gerð hennar yrði sérstaklega litið til geðsjúkra fanga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×