Innlent

Spyr um verktakakostnað sérstaks saksóknara

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Össur vill meðal annars vita til hvaða verkefna þjónustan var keypt.
Össur vill meðal annars vita til hvaða verkefna þjónustan var keypt. Vísir/Daníel
Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur lagt fram fyrirspurn til skriflegs svars til Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, dómsmálaráðherra.

Össur spyr hver kostnaður embættis sérstaks saksóknara hefur verið vegna aðkeyptrar þjónustu og ráðgjafar til 1. október 2014.

Þá spyr hann einnig til hvaða verkefna þjónustan var keypt, af hverjum og hve háar greiðslurnar voru til hvers aðila. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×