Innlent

Spyr um hagsmunaskráningu þingmanna

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Svandís Svavarsdóttir, þingflokksformaður Vinstri grænna.
Svandís Svavarsdóttir, þingflokksformaður Vinstri grænna. vísir/daníel
Svandís Svavarsdóttir, þingflokksformaður Vinstri grænna, hefur lagt fram fyrirspurn til Einars K. Guðfinnssonar, forseta Alþingis, um hagsmunaskráningu þingmanna.

Fyrirspurnin er í fimm liðum en Svandís vill meðal annars vita hvort forseti Alþingis muni bregðast við túlkun þingmanna á reglum um skráningu þeirra á hagsmunum sínum.

Þá spyr hún hvort forsetinn telji að reglur um hagsmunaskráningu hafi verið brotnar þegar fyrrverandi forsætisráðherra lét hjá líða að skrá eignarhlut sinn í aflandsfélaginu þegar hann var kosinn á þing árið 2009. Hún spyr að því sama varðandi fjármála- og efnahagsráðherra „ þegar hann lét hjá líða að skrá eignarhlut sinn í aflandsfélaginu Falson & Co. með tilliti til þess að ráðherrann hefur gegnt þingmennsku frá árinu 2003."

Hún vill jafnframt vita hvort forseti telji eðlilegt að þingmenn beri sjálfir alla ábyrgð á hagsmunaskráningu sinni, eða hvort hann álíti að forsætisnefnd eigi að hafa eftirlit með hagsmunaskráningu þingmanna.

Að lokum spyr hún hvort hann telji að breyta eigi reglum um hagsmunaskráningu þingmanna og skrá víðtækari upplýsingar en nú sé gert.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×