Spyr hvort ESB aðild muni sökkva sjávarútveginum 30. janúar 2009 09:39
Bandaríska blaðið Chistian Science Monitor, sem gefið er út í Boston, veltir því upp í grein í vikunni hvort áhugi Íslendinga á aðild að Evrópusambandinu muni reynast banabiti íslensks sjávarútvegs. Greinin ber yfirskriftina „Will EU lifeline sink Iceland's fishing industry." Fjallað er um málið á vefsíðu LÍÚ. Þar segir að í greininni sé rætt við ýmsa aðila um sjávarútvegs- og efnahagsmál á Íslandi. Einar K. Guðfinnsson, fráfarandi sjávarútvegsráðherra, segir óhugsandi að Ísland gangi í ESB og haldi samt fiskveiðiréttindum sínum. Það sé ekkert annað en ímyndun. „Við börðumst fyrir fiskveiðiréttindum okkar og þau okkar sem muna þá tíma líta á þá baráttu sem framhald á sjálfstæðisbarátu okkar," segir Einar Kristinn og bætir því við að gangi rekstur sjávarútvegs illa komi það strax fram í versnandi lífskjörum þjóðarinnar. Sigurður Sverrisson, forstöðumaður kynningarmála hjá LÍÚ, segir í sömu grein að Evrópusambandið veiti engan afslátt af sjávarútvegsstefnu sinni, engin fordæmi séu fyrir slíku. „Ég skora á fólk að koma með dæmi um slíkt,"segir hann og bendir jafnframt á að íslenskur sjávarútvegur njóti ekki opinberra styrkja, andstætt því sem gerist innan ESB.
Mest lesið Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Viðskipti innlent Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Viðskipti innlent Innkalla vegna aðskotahlutar Neytendur Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Viðskipti innlent Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Viðskipti innlent Staðalímyndir meira vandamál en kynslóðamunur Atvinnulíf Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Sjá meira