Bílar

Spyker sameinast Volta Volare

Finnur Thorlacius skrifar
Bílar Spyker hafa vakið athygli fyrir fallega hönnun.
Bílar Spyker hafa vakið athygli fyrir fallega hönnun.
Hollenski rafmagnsbílaframleiðandinn Spyker smíðaði ógnafallega bíla áður en fyrirtækið varð gjaldþrota í desember síðastliðnum. Nú hefur Spyker verið sameinað lúxusflugvélasmiðnum Volta Volare sem er með höfuðstöðvar í borginni Portland í Oregon fylki Bandaríkjanna.

Ekki fylgir sögunni hvaða stefnu Spyker mun taka og hverskonar bílar muni koma frá fyrirtækinu í framhaldinu, en þeir gætu áfram orðið hreinræktaðir rafmagnsbílar eða tvíorkubílar.

Victor Muller stofnandi og eigandi Spyker hefur semsagt ekki gefist upp á bílaframleiðslu og ætlar að halda ótrauður áfram að smíða eftirtektaverða bíla, en eitt er víst, hann er maður sem aldrei gefst upp þrátt fyrir hremmingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×