Lífið

Spurningabomba kvöldsins: Hvaða lag er Rúnar að leika?

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Í kvöld kemur Spurningabomban aftur á dagskrá Stöðvar 2. Þátturinn verður sýndur klukkan 19:50.

Einn af föstu liðum þáttarins er Dansleikurinn, þar sem Rúnar Freyr mætir og sýnir texta lags með látbragðsleik. Keppendur eiga síðan að giska á hvaða lag Rúnar er að leika.

Hér að ofan má sjá Dansleik þáttarins í kvöld. Vita áhorfendur hvaða lag Rúnar er að leika? Svör óskast í athugasemdakerfinu hér að neðan.

Þeir sem eru spenntir að vita rétt svar geta horft á Spurningabombuna á Stöð 2 klukkan 19:50. Svarið birtist svo á Vísi um helgina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×