Lífið

Springa úr hlátri og koma varla upp orði

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Leikarinn Bradley Cooper var gestur í spjallþætti Jimmy Fallon til að tala um nýtt hlutverk leikarans en hann leikur fílamanninn Joseph Merrick í nýju leikriti á Broadway.

Eins og sést í meðfylgjandi myndbandi gekk þeim félögum mjög erfiðlega að tala um hlutverkið því þeir sprungu ítrekað úr hlátri.

Þeir sem komast í gegnum þetta myndband án þess að hlæja eru greinilega ekki með húmorinn í lagi!






Fleiri fréttir

Sjá meira


×