Erlent

Sprengingar á flugvelli og lestarstöð í Brussel

Samúel Karl Ólason skrifar
Fólk yfirgefur Zaventem flugvöllinn, sem hefur verið lokað í dag.
Fólk yfirgefur Zaventem flugvöllinn, sem hefur verið lokað í dag. Vísir/AFP
Þrjár sprengingar urðu í Brussel í morgun; á Zaventem flugvellinum og í lest nærri Maelbeek lestarstöðinni. Staðfest er að 34 eru látnir eftir sprengingarnar; 20 á lestarstöðinni og 14 á flugvellinum.

Maggie
 de Block, heilbrigðisráðherra Belgíu, staðfestir að 14 hafi látist í árásinni á flugvellinum og að 81 hafi slasast. Borgarstjóri Brussel hefur staðfest að 20 hafi látist í neðanjarðarlestargöngunum við Maelbeek lestarstöðina, í grennd við skrifstofur Evrópusambandsins.

Sprengjur á tveimur stöðum


Minnst þrjár sprengjur voru sprengdar í Brussel í morgun í samræmdum hryðjuverkaárásum á borgina. Belgíski ríkissaksóknarinnar hefur staðfest að um sjálfsmorðssprengjuárás hafi verið að ræða á alþjóðaflugvellinum.

Tvær háværar sprengingar heyrðust á Zaventem flugvellinum í Brussel um klukkan sjö í morgun. Belgíska almannaútvarpið VRT segir að þrettán séu látnir eftir sprengingarnar en tala látinna hefur verið á reiki í morgun og hefur hún hækkað talsvert frá fyrstu fréttum.

Búið er að loka flugvellinum fram til klukkan sex í fyrramálið hið minnsta, samkvæmt tilkynningu frá stjórnendum flugvallarins. Öllum flugferðum hefur verið aflýst, þar á meðal ferðum Icelandair

Seinni árásin gerð klukkutíma síðar

Um klukkutíma seinna var önnur sprenging á neðanjarðarlestarstöðinni Maelbeek, sem er í grennd við skrifstofur framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, Evrópuráðsins og skrifstofur Sameinuðu þjóðanna. Belgíska almannaútvarpið VRT segir að minnst tíu séu látnir eftir sprenginguna.

Samgöngukerfi borgarinnar er lamað og var lestarferðum með Eurostar til og frá Brussel aflýst í dag.

Síðustu daga hefur viðbúnaður lögreglu í Brussel verið gífurlega mikill. Salah Abdeslam, sem talinn er hafa tekið þátt í árásunum í París í nóvember, var handtekinn á föstudaginn. Enn stendur yfir leit að minnst tveimur vitorðsmönnum hans.

Ljóst er að Abdeslam hafði verið að skipuleggja hryðjuverk í Brussel. Innanríkisráðherra Belgíu sagði í gær að yfirvöld þar hefðu áhyggjur af hefndaraðgerðum. Belgar hafa nú hækkað viðbúnað sinn á hæsta stig.

Var að taka af stað frá Maelbeek

Samgönguyfirvöld í Brussel segja að sprenging hafi orðið um borð í neðanjarðarlest þegar hún var að taka af stað frá Maelbeek stöðinni á leið sinni stutta vegalengd yfir á Arts-Loi stöðina. Lestin var samsett af þremur vögnum og var sprengjan staðsett í miðjuvagninum. Lestarstjórinn stöðvaði lestina samstundis og voru fremsti og aftasti vagninn tæmdur.

Samkvæmt belgísku fréttastofunni VTM hefur lögreglan fundi ósprungið sprengjuvesti á flugvellinum í Brussel. Fyrr í dag var greint frá því að Kalashnikov hríðskotariffill hafi fundist á flugvellinum.

Didier Reynders, utanríkisráðherra Belgíu, sagði í sjónvarpsviðtali að rannsókn væri yfirstandandi á því hvort vígamenn sem tengist árásunum gengu enn lausir. Lögreglan í Brussel hefur ráðist til atlögu gegn grunuðum hryðjuverkamönnum í borginni og voru fjölmiðlar ytra beðnir um að segja ekki frá þeim aðgerðum.

Stjórnvöld hafa hvatt skóla til að halda börnum innandyra og hefur því verið beint til fyrirtækja að hvetja starfsmenn sína til að fara ekki út á götur borgarinnar. Viðbúnaður í borginni er kominn á hæsta stig en það gerðist síðast í nóvember síðastliðnum, í kjölfar hryðjuverkaárásanna á París.

Létust bæði á flugvellinum og á lestarstöðinni

Forsætisráðherra Belgíu sagði á blaðamannafundi rétt fyrir ellefu í dag að hryðjuverkamenn hefðu framið morð bæði á flugvellinum og á lestarstöðinni. Á fundinum greindi hann frá því að herinn hefði verið kallaður til. Hann staðfesti að sprengjuárásin á flugvellinum hafi verið framkvæmd af sjálfsmorðsárásarmanni.

Amercian Airlines hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem bornar eru til baka fréttir um að sprengingarnar hafi átt sér stað við innritunarborð flugfélagsins. Í tilkynningunni segir að verið sé að huga að starfsfólki félagsins, sem allt hafi lifað af árásina.

Bjóða fólki gistingu

Þúsundir eru nú fastir í Brussel þar sem samgöngur eru stopp og fólk sem var ef til vill á leið frá borginni kemst ekki þaðan. Íbúar borgarinnar hafa nú tekið upp á því að bjóða þeim sem eru fastir í borginni gistingu á samfélagsmiðlum. Kassamerkið #OpenHouse hefur nú verið notað margsinnis á Twitter.

Þjóðarleiðtogar um allan heim hafa tjáð sig um árásirnar og lýst yfir stuðningi við Belgíu. Þeirra á meðal eru Francois Hollande, David Cameron og Vladimir Putin.

Þessi frétta var síðast uppfærð klukkan 15.00 í dag en hún hefur verið stöðugt uppfærð frá því í morgun þegar fyrstu fréttir bárust frá Belgíu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×