Lífið

Spreng­hlægi­legt mynd­band: Þórunn Antonía reynir að bera fram nöfn rappara

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þeir Róbert Aron Magnússon og Benedikt Freyr Jónsson, eða Robbi Kronik og Benni B-Ruff eins og mæður þeirra þekkja þá, í útvarpsþættinum Kronik,­ réðust í það verkefni að velja það sem stóð upp úr á árinu 2016 í heimi hiphop-tónlistar og var af því tilefni sérstakur árslistaþáttur hjá þeim félögum á laugardaginn síðasta.

Þeir stóðu þó ekki einir í þessu verkefni heldur fengu þeir með sér nokkra álitsgjafa sem sendu inn sínar tilnefningar. Flokkarnir sem valið var í að þessu sinni voru 20 bestu lög ársins, fimm bestu plöturnar og tíu bestu íslensku rapp­lögin.

Útvarpsþátturinn Kronik er á dagskrá á X-inu alla laugardaga frá klukkan 17 til 19. Þátturinn hóf upphaflega göngu sína árið 1993 en lagðist síðan í dvala fyrir einum tíu árum, en sneri svo að lokum aftur á X-ið í nóvember í fyrra.

Á laugardaginn fylltu þeir félagarnir gasklefa X-ins af vinum og vandamönnum og var ein af þeim Þórunn Antonía sem las upp listann yfir 25 bestu erlendu lög ársins á sprenghlægilegan hátt. Þórunn sá um Íslenska listann í nokkur ár en hún er hreinlega í smá vandræðum með framburðinn á þessum lista eins og sjá má hér að neðan.


Tengdar fréttir

Árslisti útvarpsþáttarins Kronik 2016

Í útvarpsþættinum Kronik er fjallað um allt það sem ber hæst í heimi hiphop-tónlistar bæði hér heima og erlendis. Þeir Róbert Aron og Benedikt Freyr, stjórnendur þáttarins, hafa nú sent frá sér lista yfir allt það besta frá síðasta ári.

Alvia fór á kostum í Kronik

Útvarpsþátturinn Kronik snéri aftur til leiks 26. nóvember og þá eftir tíu ára fjarveru í útvarpi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×