Lífið

Sprenghlægilegt myndband: Ömmur reykja gras í fyrsta sinn

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Í nýju myndbandi frá fyrirtækinu Cut sjást þrjár ömmur reykja gras í fyrsta sinn. Myndbandið er tekið upp í Washington-fylki í Bandaríkjunum þar sem löglegt er að reykja gras.

„Ég var of upptekin að ala upp börn,“ segir ein þeirra aðspurð af hverju hún hafi aldrei reykt gras fyrr. Önnur segir að hún og samferðarmenn hennar hafi frekar drukkið áfengi en neytt fíkniefna þegar hún var yngri.

Stöllurnar þrjár eru sammála um að það sé auðveldara að reykja gras en þær héldu. Síðan er fylgst með ömmunum spjalla, borða og spila á meðan þær finna fyrir áhrifum grasreykinganna.

„Þetta gæti orðið hættulega skemmtilegt,“ segir ein en myndbandið er sprenghlægilegt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×