Viðskipti erlent

Spotify efast um lögmæti nýjasta útspils Apple

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Daniel Ek er forstjóri Spotify.
Daniel Ek er forstjóri Spotify. vísir/afp
Spotify og Apple eru komin í hár saman eftir að síðarnefnda fyrirtækið neitaði að afgreiða uppfærslu smáforrit fyrrnefnda fyrirtækisins í app-store.

Fyrirtækin tvö hafa deilt um nokkurt skeið eftir að Apple setti sína eigin tónlistarveitu, Apple Music, í loftið. Í kjölfar þess hvatti Spotify þá notendur sína sem kaupa áskrift til að kaupa hana ekki í gegnum smáforritið heldur heimasíðu eða forritið í tölvu. Með því móti mætti komast hjá því að Apple tæki til sín prósentu af greiðslunni.

Að undanförnu hefur Apple krafist þess af Spotify að fyrirtækið breyti þessari afstöðu sinni. Öðrum kosti muni forrit Spotify ekki vera uppfært í tækjum frá Apple.

„Þetta nýjasta útspil vekur upp margar spurningar og ein þeirra er hvort þetta standist bandarísk og evrópsk samkeppnislög,“ ritar lögmaður Spotify í bréfi til kollega síns hjá Apple. „Við getum ekki látið það yfir okkur ganga að Apple noti app-store sem vopn í samkeppni við aðra.“

Í samtali við tónlistarmiðilinn Pitchfork sagði Jonathan Prince, upplýsingafulltrúi Spotify, að það væri eitthvað rangt við það að Apple græddi meira á Spotify áskriftum heldur en Apple Music. Þá væri sérstakt áhyggjuefni að ekki eitt einasta sent af því myndi skila sér til tónlistariðnaðarins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×