Innlent

Sporhundurinn Perla leitaði við Húrra og í Flatahrauni

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Á kortinu má sjá það sem vitað er um ferðir Birnu Brjánsdóttur.
Á kortinu má sjá það sem vitað er um ferðir Birnu Brjánsdóttur. vísir/loftmyndir
Farið var með sporhundinn Perlu að skemmtistaðnum Húrra í miðbæ í Reykjavíkur í gær og að Flatahrauni í Hafnarfirði til að leita að Birnu Brjánsdóttur sem saknað hefur verið síðan á sjötta tímanum aðfaranótt laugardags. Í nótt fundaði lögreglan með foreldrum Birnu þar sem farið var yfir stöðuna varðandi leitina, samkvæmt upplýsingum frá móður Birnu.

Sporhundurinn Perla er sú eina sinnar tegundar á landinu og fór í tæpa 200 km af spori á síðasta ári og í 32 útköll.Vísir/Vilhelm
Samkvæmt upplýsingum frá Þorsteini G. Gunnarssyni, upplýsingafulltrúa Landsbjargar, hefur ekki verið óskað eftir aðstoð björgunarsveitanna að öðru leyti en því að nokkrir björgunarsveitarmenn voru úti með hundinum í gær. 

Gríðarlegur fjöldi fólks hefur tekið þátt í að leita að Birnu og hefur verið stofnuð sérstök Facebook-síða til að halda utan leitina. Síðast er vitað um ferðir Birnu við Laugaveg 31 klukkan 05:25 aðfaranótt laugardags.

Þá sendi síminn hennar frá sér merki um hálftíma síðar við Flatahraun í Hafnarfirði. Inni á Facebook-síðunni hefur verið sett upp kort þar sem sést hvar leitað hefur verið að Birnu.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir ökumanni þessa bíls.
Lýsa eftir ökumanni rauðs Kia Rio

Í morgun lýsti lögreglan eftir ökumanni rauðs fólksbíls, sennilega af gerðinni Kia Rio, sem ekið var vestur Laugaveg á móts við hús númer 31. Birna hafði verið á skemmtistaðnum Húrra við Tryggvagötu.

Hún sést svo í eftirlitsmyndavélum ganga ein ein síns liðs austur Austurstræti, Bankastræti og Laugaveg að húsi númer 31. Þar hverfur hún sjónum um klukkan 05:25.

Birna er 170 sentimetrar á hæð, með sítt ljósrautt hár, klippt með topp fram á ennið.  Hún var klædd í svartar gallabuxur, gráa peysu og svartan flísjakka með hettu. Þá var hún í svörtum uppreimuðum Dr. Martens skóm.

Móðir Birnu, Sigurlaug Hreinsdóttir, var í viðtali í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær. Biðlaði hún til þeirra, sem mögulega héldu henni í gíslingu, að skila henni. Viðtalið má sjá hér að neðan.



Lögreglan biður alla þá sem veitt geta upplýsingar um ferðir Birnu og hvar hún er niðurkomin að hafa samband við lögreglu í síma 444 1109. Auk þess biður lögreglan ökumann rauða Kia-bílsins að hafa samband auk allar annarra sem voru á ferðinni á þessum slóðum um klukkan 05:25 aðfaranótt laugardags.

Hér að neðan má sjá myndbönd af Birnu sem faðir hennar deildi á Facebook-síðu sinni í von um að það hjálpi til við leitina.


Tengdar fréttir

Árangurslaus leit að Birnu: Hún er alltaf „online“

Ekkert hefur spurst til Birnu Brjánsdóttur síðan aðfaranótt laugardagsins. Leit vina og vandamanna í gær skilaði ekki árangri. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu skoðaði upptökur úr eftirlitsmyndavélum og símagögn nær sleitulaust í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×