Bíó og sjónvarp

Spólgröðu krakkarnir standa nú á tvítugu

guðrún ansnes skrifar
Leo Fitzpatrick lék aðalhlutverkið, Telly. Hann hafur helst sést á sjónvarpsskjáum síðan, svo sem í einum eða tveimur þáttum af Law and Order, Sons of Anarchy og My Name Is Earl.
Leo Fitzpatrick lék aðalhlutverkið, Telly. Hann hafur helst sést á sjónvarpsskjáum síðan, svo sem í einum eða tveimur þáttum af Law and Order, Sons of Anarchy og My Name Is Earl.
Nú eru tuttugu ár síðan hin umdeilda kvikmynd Kids, eftir Larry Clark, kom út og var fyrst sýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes árið 1995. Má með sanni segja að hér sé um að ræða kvikmynd sem olli fjaðrafoki, enda nokkuð viðkvæmt viðfangsefni, spólgraðir krakkar að fóta sig í ruglaðri tilverunni á tímum uppsveiflu kynsjúkdóma á tíunda áratug síðustu aldar.

Á meðan einhverjir fögnuðu myndinni, líkt og kvikmyndagagnrýnandi The New York Times, Janet Maslin, sem sagði hana þarfa áminningu um breytt landslag æskunnar í nútíma heimi, sögðu aðrir að hér væri ekki um annað að ræða en einhvers konar barnaklám.

Kvikmyndin Kids
Myndin er tekin upp með þeim hætti að áhorfanda líður eins og um sé að ræða heimildarmynd. Tilgangur myndarinnar var einmitt að vekja tilfinningu áhorfanda fyrir raunveruleika æskunnar og virðist það aldeilis hafa tekist.

Clark upplýsti nýlega að hvert einasta atriði í myndinni hefði verið skrifað og þaulskipulagt þrátt fyrir að virðast spuni frá upphafi til enda, fyrir utan eitt. „Þetta er atriðið þegar nokkrir hjólabrettastrákar sitja saman í sófanum og eru að spjalla. Ég sagði þeim hvað þeir ættu að tala um, og þeir gerðu það. Þetta er mögulega eitt besta atriðið í myndinni, algjörlega magnað,“ sagði Clark í viðtali í tilefni tvítugsafmælisins.

Þótt liðin séu tuttugu ár síðan myndin leit dagsins ljós, þykir hún fyllilega eiga jafn vel við í dag, enda æskan væntanlega jafn völt nú og þá.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×