Tónlist

Splunkunýtt myndband með Skurken

Stefán Árni Pálsson skrifar
Lagið heitir Straumur.
Lagið heitir Straumur. vísir
Raftónlistarmaðurinn Skurken hefur gefið út nýtt myndband við lagið Straumur sem er frumsýnt á Vísi hér að neðan.

Breiðskífa með sveitinni kom út í september og er fáanleg á geisladiskaformi og stafrænt.

Platan ber nafnið Nónfjall en um er að ræða fjórðu breiðskífu hans. Breiðskífan, sem er fáanleg í öllum betri búðum, er myndræn, dýnamísk og stemningafull - og haldbær sönnun þess að hið hreinræktaða heiladansform lifir enn góðu lífi.

Jóhann Ómarsson (Skurken) er fæddur í Reykjavík árið 1977. Hann hefur lengi vel verið einn virtasti raftónlistarmaður landsins og eftir hann liggja þó nokkrar útgáfur. Síðasta breiðskífan hans Gilsbakki, sem kom út á vegum Möller Records árið 2011, fékk rífandi dóma hjá gagnrýnendum. Hann er einnig einn af stofnendum Möller Records, sem hafa staðið að útgáfu á íslenskri raftónlist í hartnær fjögur ár.

Þar er Raftónar , íslenskt útgáfufyrirtæki, sem gefur plötuna út en fyrirtækið hefur, að mestu, einbeitt sér á erlendan markað. 

Skurken - Straumur (Official Video) from Raftonar on Vimeo.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×