Tónlist

Splunkunýtt lag frá Prince

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Tónlistarmaðurinn Prince er búinn að setja nýtt lag á netið sem heitir U Know. Lagið hefur runnið ljúft ofan í aðdáendur söngvarans.

Lagið verður á plötunni Art Official Age sem telur alls þrettán lög og er önnur tveggja, nýrra platna frá honum. Hin heitir PLECTRUMELECTRUM og er unnin með hljómsveit hans 3RDEYEGIRL.

Báðar plötur koma út 29. september en hægt er að hlusta á lagið U Know hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×