Lífið

Spjallaðu við Siggu Kling í beinni á Vísi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Spennandi föstudagur framundan hjá Siggu Kling.
Spennandi föstudagur framundan hjá Siggu Kling.
Stjörnuspár Sigríðar Klingenberg spámiðils hafa notið gríðarlega vinsælda undanfarin ár. Mánaðarlega spáir hún fyrir lesendum Vísis og Fréttablaðsins, í formi texta og myndbands, en spárnar fyrir september birtast í Fréttablaðinu og hér á Vísi á föstudagsmorgun.

Sigga leggur leggja áherslu á að fólk geri það besta úr því sem það les, nýta sér orkuna, klappa sér á bakið og elska lífið. Spárnar einkennast af gleði, krafti, orku og jákvæðni en það eru skilaboðin sem hún vill senda til samfélagsins.

Vísir fer af stað með skemmtilega nýjung á föstudaginn en hægt verður að spjalla við Siggu Kling í beinni útsendingu á Facebook Live klukkan 13. Lesendum býðst þar að bera fram spurningar um allt milli himins og jarðar.

Sigga ætlar að gera sitt besta til að svara öllum spurningum og reyna þannig skyggnast inn í líf okkar lesenda. Hún getur einnig sagt ýmislegt um fortíð lesenda og framtíð þeirra ef þeir biðja hana um að rýna í fæðingardag sinn.

Útsendingin verður aðgengileg hér á Vísi en hún fer fram í gegnum Facebook-síðu Vísis klukkan 13 á föstudag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×