Fótbolti

Spilar fyrsta A-landsleikinn sinn á móti Úsbekistan í Kína

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Nöfnurnar Berglind Hrund Jónasdóttir og Berglind Björg Þorvaldsdóttir eru fremsti og aftasti maður íslenska liðsins á móti Úsbekistan.
Nöfnurnar Berglind Hrund Jónasdóttir og Berglind Björg Þorvaldsdóttir eru fremsti og aftasti maður íslenska liðsins á móti Úsbekistan. Vísir/Eyþór
Stjörnukonan Berglind Hrund Jónasdóttir spilar sinn fyrsta landsleik nú í morgunsárið þegar íslenska kvennalandsliðið spilar lokaleik sinn á Sincere Cup æfingamótinu í Kína.

Ísland leikur við Úsbekistan í lokaleik í Chongqing í Kína og hefst leikurinn klukkan 16.00 að kínverskum tíma eða klukkan 8.00 að íslenskum tíma.

Freyr Alexandersson, þjálfari íslenska liðsins, hefur tilkynnt byrjunarliðið sitt og gerir áfram fjölmargar breytingar á byrjunarliðinu.

Stjörnukonan Berglind Hrund Jónasdóttir er í markinu og spilar sinn fyrsta A-landsleik. Hólmfríður Magnúsdóttir spilar sem bakvörður og Dagný Brynjarsdóttir er með fyrirliðabandið í fjarveru Margrétar Láru Viðarsdóttur og Söru Bjarkar Gunnarsdóttur.

Ísland er með eitt stig á mótinu eftir að hafa gert 2-2 jafntefli við Kína í fyrsta leik en tapað svo 1-0 fyrir Danmörku. Íslensku stelpurnar stóðu sig mjög vel á móti heimakonum en áttu ekki eins góðan leik á móti þeim dönsku.

Úsbekistan er stigalaust á mótinu en liðið hefur sýnt góða frammistöðu í leikjum sínum gegn Kína og Danmörku. Sigur gæti tryggir Íslandi annað eða þriðja sæti mótsins.



Byrjunarlið íslenska liðsins á móti Úsbekistan er svona:

Markvörður: Berglind Hrund Jónasdóttir.

Vörnin: Hólmfríður Magnúsdóttir - Anna Björk Kristjánsdóttir - Sif Atladóttir - Rakel Hönnudóttir.

Miðjan: Fanndís Friðriksdóttir - Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir - Dóra María Lárusdóttir - Dagný Brynjarsdóttir (Fyrirliði) - Svava Rós Guðmundsdóttir.

Sókn: Berglind Björg Þorvaldsdóttir.

Íslensku stelpurnar á vellinum fyrir leikinn.Mynd/KSÍ/Hilmar Þór

Tengdar fréttir

Sara Björk: Við hlupum af okkur rassgatið

Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins, var í viðtali á Youtube-síðu Knattspyrnusambands Íslands eftir 2-2 jafntefli íslenska liðsins við það kínverska á Sincere Cup æfingamótinu í Kína í dag.

Freyr: Frammistaðan langt frá okkar besta

"Ég er bara óánægður að tapa, þetta var ekki leikur sem við þurftum að tapa,“ segir Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari íslenska kvennalandsliðsins, eftir að liðið hafði tapað 1-0 fyrir Dönum á Sincere Cup í Kína í dag.

Danir höfðu betur gegn Íslendingum

Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu tapaði fyrir því danska í annarri umferð Sincere Cup sem fram fer í Kína um þessar mundir en leikurinn fór 1-0 fyrir Dönum.

Freyr: Þetta var eins og leikur á stórmóti

Freyr Alexandersson var í viðtali á Youtube-síðu Knattspyrnusambands Íslands eftir 2-2 jafntefli íslenska kvennalandsliðsins við það kínverska á Sincere Cup æfingamótinu í Kína í dag.

Glódís: Vorum orkulausar í síðari hálfleiknum

„Við erum mjög svekktar. Mér fannst við betri í þessum leik og í fyrri hálfleik eigum við leikinn, þær fá tvær sóknir og skora eitt mark,“ segir Glódís Perla Viggósdóttir, leikmaður íslenska kvennalandsliðsins, eftir að liðið hafði tapað 1-0 fyrir Dönum á Sincere Cup í Kína í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×