Fótbolti

Spilaði með Maríu: Sigraðist á krabbanum og fékk ósk sína uppfyllta

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Katrina og María.
Katrina og María. Mynd/Skjáskot
María Þórisdóttir, landsliðskona Noregs í knattspyrnu, stóð á dögunum við loforð sem hún gaf hinni ellefu ára gömlu Katrina árið 2015.

Þegar þær hittust þá lofaði María, sem er dóttir Þóris Hergeirssonar, landsliðsþjálfara norska kvennalandsliðsins í handbolta, loforð um að spila með henni fótbolta þegar hún væri nógu sterk til þess.

Sjá einnig: Maríu Þórisdóttur bauðst að spila fyrir Ísland

Katrina var að berjast við krabbamein þá en hefur nú haft betur í baráttu sinni við meinið.

Maríu var að sjálfsögðu bæði ljúft og skylt að uppfylla loforðið eins og sjá má í meðfylgjandi myndbandi, frá NRK Rogaland í Noregi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×