Fótbolti

Spilaði ekki mínútu á EM en ertu að grínast með móttökurnar | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Will Gregg fagnar marki sem hann skoraði í síðasta undirbúningsleik Norður-Íra fyrir EM. Það dugði honum þó ekki til að fá mínútur í Frakklandi.
Will Gregg fagnar marki sem hann skoraði í síðasta undirbúningsleik Norður-Íra fyrir EM. Það dugði honum þó ekki til að fá mínútur í Frakklandi. Vísir/AFP
Norður-írska landsliðið fékk frábærar móttökur þegar liðið snéri heim til Belfast eftir Evrópumótið í Frakkalandi þar sem liðið komst í sextán liða úrslitin á sínu fyrsta EM.

Norður-Írar féllu út fyrir Wales á grátlegan hátt en Gareth McAuley varð þá fyrir því að skora sjálfsmark sem færði Wales sæti í átta liða úrslitunum.

Norður-Írar héldu sérstaka móttökuhátíð fyrir leikmennina og þar voru þeir kynntir til leiks einn á fætur öðrum. Enginn fékk þá flottari móttökur en framherinn Will Griggs.

Will Grigg er líklega frægasti leikmaður norður-írska landsliðsins þótt að átján leikmenn hafi spilað meira en hann í fjórum leikjum Norður-Íra á EM í Frakklandi.

Will Grigg spilaði ekki mínútu á EM í Frakklandi en nafn hans var samt mikið í fréttum þar sem stuðningsmenn Norður-Írlands elskuðu ekkert meira en að syngja Will Griggs sönginn „Will Grigg is on fire".

Það var stuðningsmaður Wigan Athletic sem setti myndband inn á Youtube með lagi um Will Griggs þar sem að viðlagið var „Will Grigg's on fire, your defence is terrified" en lagið sjálft er lagið „Freed from Desire" með ítalska tónlistamanninum Gala.

Will Grigg fór á kostum með Wigan Athletic í ensku C-deildinni og skopraði 25 deildarmörk á tímabilinu. Það var nóg til að tryggja honum sæti í EM-hópnum en landsliðsþjálfarinn hafði þó ekki not fyrir hann í leikjunum fjórum.

Stuðningsmennirnir elskuðu sönginn um Will Grigg ekkert minna þrátt fyrir það og sungu hann endalaust á leikjum liðsins á EM.

Það var því mjög skemmtilegt stund á móttökuhátíðinni til þegar Will Grigg var kynntur til leiks eins og sjá má hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×