Golf

Spieth með óbragð í munni

Spieth á Opna breska.
Spieth á Opna breska. vísir/getty
Jordan Spieth var ansi nálægt því vinna sitt þriðja risamót í röð á Opna breska og það situr enn í honum. Hann ætlar að svara á PGA-meistaramótinu.

„Mér líður eins og ég þurfi að hefna fyrir að hafa misst stjórn á Opna breska. Ég var með stjórnina er tvær holur voru eftir en ég náði ekki að klára," sagði Spieth.

„Það skilur eftir óbragð í munni því það koma ekki mörg tækifæri um ævina til þess að vinna Opna breska á St. Andrews."

Hann flaug svo heim til Bandaríkjanna ásamt sigurvegaranum Zach Johnson.

„Það var erfitt flug með bikarnum heim. Ég vildi að bikarinn væri minn en ekki hans."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×