Golf

Spieth bauð upp á grillmat

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Spieth hélt sér á kunnulegum slóðum í vali sínum á matseðli meistaramáltíðarinnar.
Spieth hélt sér á kunnulegum slóðum í vali sínum á matseðli meistaramáltíðarinnar. Vísir/Getty
Masters-mótið, fyrsta stórmót ársins, hefst á morgun en í gær fór fram árlegur kvöldverður fyrrum meistara.

Eins og venjan er var það undir ríkjandi meistara komið að velja matseðilinn og borga matinn.

Jordan Spieth fagnaði sigri í fyrra og var með „ekta grillmat frá Texas“ í aðalrétt. Það er viðeigandi, enda ólst Spieth upp í Texas. Aðalrétturinn var veglegur með nautakjöti, kjúklingi og rifjum.

Matseðilinn er eins og gefur að skilja afar mismunandi frá ári til árs enda koma fyrrum meistarar úr öllum heimshornum.

Þó er líklega einn óvenjulegasti matseðilinn frá 1998 þegar hinn 22 ára Tiger Woods valdi að bjóða upp á ostaborgara, kjúklingasamlokur, franskar og mjólkurhristinga.

Fyrrum meistarar eru þó ekki skyldugir til að borða réttinn sem meistarinn valdi og geta, ef þeim sýnist svo, pantað aðra hefðbundna rétti af matseðli Augusta-klúbbsins.

Þessi hefði hefur verið við lýði síðan 1952 og átti Ben Hogan, þáverandi meistari, frumkvæði að þessu fyrirkomulagi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×