Golf

Spieth ætlar sér á spjöld sögunnar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jordan Spieth er við það að komast á spjöld sögunnar.
Jordan Spieth er við það að komast á spjöld sögunnar. Vísir/Getty
Bandaríkjamaðurinn Jordan Spieth á möguleika í dag að koma sér í sögubækurnar með því að vinna sitt þriðja risamót í röð. Engum hefur tekist það síðan að Ben Hogan gerði það fyrir 62 árum síðan.

Aðeins tveimur kylfingum hefur tekist að vinna meira en tíu risamót á ferlinum - þeim Jack Nicklaus og Tiger Woods. Hvorugum tókst þó að vinna þrjú í röð en Spieth, sem er 21 árs gamall, á góðan möguleika á ná þeim áfanga í dag.

Hann spilaði á 66 höggum á þriðja keppnisdegi og er nú aðeins einu höggi á eftir fremstu mönnum. Þrír deila forystunni fyrir lokahringinn í dag - Louis Oosthuizen, Jason Day og írski áhugamaðurinn Paul Dunne.

„Ég ætla að spila til sigurs. Ég hef engan áhuga á að vera í þriðja sæti,“ sagði Spieth í gær. „Ég mun spila mitt golf og vera þolinmóður. Ég ætla að reyna að komast í forystu en til þess þarf ég að vera ákveðinn.“

„Ég hef í raun engu að tapa. Það er allt í lagi ef mér tekst ekki að vinna á morgun. Það veitir mér í raun frelsi til að taka smá áhættu.“

Engum hefur tekist að vinna öll fjögur stórmótin sama árið eftir að Masters-mótið var sett á stofn.

Útsending frá mótinu hefst á Golfstöðinni klukkan 12.30 í dag en Spieth, sem er í ráshópi með Jason Day, hefur keppni klukkan 13.20. Oosthuizen og Dunne fara svo síðastir út klukkan 13.30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×