Golf

Spieth: Fimm risamót í golfinu á næsta ári

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jordan Spieth.
Jordan Spieth. Vísir/Getty

Árið 2016 verður mjög stórt ár í golfinu því auk risamótanna fjögurra verða önnur stórmót, Ryder-bikarinn um mánaðarmótin september-október og svo golfkeppni Ólympíuleikanna í Ríó í ágúst.

Jordan Spieth, efsti maður heimslistans, bíður spenntur eftir komandi golfári og hann lítur á það að það verði í raun keppt á fimm risamótum á næsta ári.

Ástæðan er að nú verður keppt í golfi á Ólympíuleikunum í fyrsta sinn í meira en heila öld. Jordan Spieth verður að öllum líkindum einn af fjórum bandarískum kylfingum sem fá að keppa á leikunum svo framarlega að hann meiðist ekki eða hrapi niður heimslistann.

„Bara það að keppa á sjálfum Ólympíuleikunum, labba inn á setningarhátíðinni, gista í Ólympíuþorpinu og hitta allt þetta frábæra íþróttafólk allstaðar af úr heiminum. Vonandi er það eitthvað sem ég fær að upplifa í ágúst," sagði Jordan Spieth á blaðamannafundi fyrir golfmót í Sydney.

„Að ná að vinna gull á Ólympíuleikum er í mínum huga jafn merkilegt og að vinna risamót. Ég hef verið spurður um það hvort ég vildi frekar grænan jakka eða gullmedalíu en það er ekki sanngjörn spurning," sagði Jordan Spieth.

Jordan Spieth átti frábært ár í ár en hann vann bæði Masters-mótið og opna bandaríska meistaramótið og varð síðan í öðru sæti PGA-meistaramótinu og í fjórða sæti á opna breska meistaramótinu.

„Ég held að við kylfingar munum hugsa til leikanna eins og þeir séu fimmta risamótið. Við munum undirbúa okkur vel og með það markmið að vinna gullið," sagði Spieth. Sumir atvinnukylfinganna hafa gert lítið úr keppninni á Ólympíuleikunum en Spieth er einn af þeim sem dreymir um fyrsta Ólympíugull kylfings í meira en hundrað ár.

Jordan Spieth.Vísir/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×