Lífið

Spielberg og Lawrence í eina sæng

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Jennifer Lawrence mun fara með hlutverk stríðsljósmyndara.
Jennifer Lawrence mun fara með hlutverk stríðsljósmyndara. Mynd/Getty
Óskarsverðlaunahafarnir Jennifer Lawrence og Steven Spielberg hafa gengið frá samningi við Warner Bros og munu þau vinna saman að kvikmynd um stríðsljósmyndarann og Pulitzer-verðlaunahafann Lynsey Addario.

Myndin verður byggð á sögunni It's What I Do: A Photographer‘s Life of Love and War, sem Addario skrifaði árið 2008 um reynslu sína, eftir að hafa myndað í stríðinu í Afganistan í kjölfar árásarinnar 11. september. Hefur Addario nú þegar fundað með handritshöfundum og Spielberg og mun hún verða þeim innan handar við gerð myndarinnar.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×