Erlent

Spennuþrunginn dagur

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Sjálfstæðissinnar hafa verið í miklum ham undanfarna daga og vikur.
Sjálfstæðissinnar hafa verið í miklum ham undanfarna daga og vikur. fréttablaðið/AP
Mikill áhugi er meðal Skota á kosningunum í dag um sjálfstæði landsins. Reikna má með því að kosningaþátttakan verði með mesta móti, en alls hafa 97 prósent kosningabærra manna skráð sig til þátttöku.

Sitt sýnist samt hverjum og tilfinningarnar hafa magnast upp síðustu dagana. Þeir sem barist hafa fyrir sjálfstæði Skotlands sjá fram á að draumurinn geti loksins ræst, en margir geta varla til þess hugsað að segja skilið við Bretland.

„Ég vil ekki búa í landi þjóðernissinna,“ hefur AP-fréttastofan eftir Cathy Chance, sem starfar hjá bresku heilbrigðisþjónustunni í Edinborg. Hún segist staðráðin í að flytja burt fari svo að sjálfstæði verði samþykkt: „Ég held að veröldin þurfi ekki ein pólitísku landamærin til viðbótar.“

Roisin McLaren, háskólanemi í Edinborg, sem tekið hefur þátt í baráttu sjálfstæðissinna, segist í fyrsta sinn vera farin að trúa því að sjálfstæði geti orðið að veruleika.

„Fjölskylda mín hefur lengi barist fyrir sjálfstæði en það hefur alltaf verið fjarlægur draumur,“ segir hún. „Það er ekki fyrr en núna á síðustu dögum sem þetta virðist mögulegt, innan seilingar. Ég get næstum því bragðað á því.“

Gordon Brown, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, hefur verið áberandi í baráttunni gegn sjálfstæði. Hann er skoskur sjálfur og hefur mætt á hvern baráttufundinn á fætur öðrum síðustu daga og vikur.

„Þetta verður enginn aðskilnaður til reynslu,“ sagði hann á þriðjudaginn. „Þetta verður óhjákvæmilega subbulegur og dýr og dýrkeyptur og erfiður skilnaður.“

Alex Salmond, leiðtogi sjálfstæðissinna, er hins vegar í skýjunum þótt enginn geti fullyrt á hvorn veginn fari.

Hann gagnrýnir bresku stjórnina fyrir að spila á síðustu stundu út loforði um að Skotar fái meira sjálfstæði, þótt þeir kjósi gegn sjálfstæði.

„Þetta örvæntingarfulla tilboð um ekki neitt á síðustu stundu á ekki eftir að fá fólk í Skotlandi ofan af því að grípa þetta mikla tækifæri um að taka framtíð Skotlands í hendur Skotlands sjálfs,“ sagði hann á þriðjudaginn.

Skoðanakannanir hjálpa ekkert við að draga úr óvissunni, því þær sýna enn að afar mjótt verði á mununum. Nei-hliðin hefur að vísu nokkurra prósenta forskot í flestum skoðanakönnunum, en munurinn er engan veginn nógu afgerandi.

Úrslitin verða ekki ljós fyrr en líða tekur á næstu nótt, en óhætt er að segja að biðin eftir þeim verði spennu þrungin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×