Lífið

Spenntur fyrir næturlífinu

"Fyrst og fremst þarftu að elska þessa keppni. Að standa á sviðinu í Vín var til að mynda stórfengleg reynsla fyrir mig.“
"Fyrst og fremst þarftu að elska þessa keppni. Að standa á sviðinu í Vín var til að mynda stórfengleg reynsla fyrir mig.“ visir/Eyþór
Måns Zelmerlöw tryggði Svíum sigur árið 2015 með laginu Heroes. Svíar hafa verið sigursælir í keppninni og Måns þakkar það góðri undankeppni í Svíþjóð.

„Keppnin er stór og vönduð, það taka hátt í þrjátíu atriði þátt og sían er mikil,“ segir hann. „En svo hafa Svíar nú reyndar líka átt mögur ár,“ segir hann. Í Svíþjóð eru margir svekktir yfir því að Eurovision-stjarnan Loreen hafi ekki komist upp úr undankeppninni í ár. „Það er svolítill skandall, það er alveg rétt og mér fannst hún standa sig vel. Atriðið var stórfenglegt, en líklega var lagið ekki nógu grípandi.“

Hvaða eiginleikum þarf sigurstranglegur keppandi að búa yfir að mati Måns? „Fyrst og fremst þarftu að elska þessa keppni. Að standa á sviðinu í Vín var til að mynda stórfengleg reynsla fyrir mig. Sem listamaður verður þú sumsé að bera virðingu fyrir og elska þessa keppni. Síðan þarftu auðvitað lag sem rígheldur hlustandanum fyrstu þrjátíu sekúndurnar og hefur svo góða uppbyggingu eftir það.“

Måns mun koma fram á úrslitakvöldinu. Þótt áhorfendur skipti ekki milljónum segist hann alltaf vera svolítið taugatrekktur áður en hann kemur fram. „Já, ég verð enn svolítið trekktur á taugum nokkrum mínútum áður en ég fer á svið. En stressið kemur adrenalíninu af stað sem verður að góðri einbeitingu og orku,“ segir hann.

Hann fór á Búðir og ferðaðist um Suðurland í vikunni. „Ég er mjög spenntur fyrir íslenskri náttúru enda átti ég einu sinni íslenska kærustu sem sagði mér frá fegurðinni hér.“

Ekki síður er hann spenntur fyrir reykvísku næturlífi sem hann hefur heyrt látið vel af. „Ég ætla auðvitað að skella mér út á lífið,“ segir hann og segist hlakka til.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×